
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist ætla að segja nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni um helgina.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Hvort ætlar þú að segja já eða nei í þjóðaratkvæðagreiðslunni?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 90,22%
Já: 8,60%
Hef ekki ákveðið mig: 1,19%
Alls voru greidd 1012 atkvæði í þessari könnun
