Könnun: Yfirgnæfandi meirihluti andvígur vegtollum

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist andvígur vegtollum innan Reykjavíkur sem hugmyndir eru uppi um að setja vegna Borgarlínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Ert þú fylgjandi vegtollum innan Reykjavíkur vegna Borgarlínu?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 95,07%
Já: 3,77%
Hlutlaus: 1,16%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila