Könnun: Yfirgnæfandi meirihluti styður brottfararstöð fyrir ólöglega hælisleitendur

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu segist sammála því að setja á laggirnar brottfararstöð fyrir ólöglega hælisleitendur. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Ert þú sammála því að setja á laggirnar brottfararstöð fyrir ólöglega hælisleitendur?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Já: 95,22%

Nei: 4,35%

Hlutlaus: 0,43%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila