Könnun: Yfirgnæfandi meirihluti telur skattahækkanir ríkisstjórnarinnar ekki rétta leið

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu telur að ekki hafi verið rétt af ríkisstjórninni að fara í skattahækkanir til þess að reyna að ná hallalausum fjárlögum árið 2027. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:

Var rétt af ríkisstjórninni að fara í skattahækkanir til þess að reyna að ná hallalausum fjárlögum 2027?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 90,67%

Já: 7,67%

Hlutlaus: 1,67%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila