
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segi af sér embætti. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra að segja af sér?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 92,48%
Nei: 5,75%
Hlutlaus: 1,77%
