Könnun: Yfirgnæfandi meirihluti vill ekki hefja aðildarviðræður við ESB á ný

Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill ekki að Ísland hefji aðildarviðræður við Evrópusambandið á ný. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.

Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Vilt þú að Ísland hefji aðildarviðræður við ESB á ný?

Niðurstaðan var eftirfarandi:

Nei: 92,12%
Já: 7,64%
Hlutlaus: 0,24%

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila