
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill ekki að Ísland taki þátt í vopnaframleiðslu í samstarfi við Úkraínu. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Vilt þú að Ísland taki þátt í vopnaframleiðslu í samstarfi við Úkraínu?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Nei: 97,08%
Já: 2,70%
Hlutlaus: 0,45%
