
Yfirgnæfandi meirihluti þeirra sem tóku þátt í skoðanakönnun Útvarps Sögu vill að meiri áhersla verði lögð á kennslu ættjarðarljóða í grunnskólum. Þetta kemur fram í niðurstöðu könnunarinnar sem fram fór hér á vefsíðunni á síðasta sólarhring.
Niðurstaðan var kynnt í lok þáttarins Línan laus rétt fyrir hádegi en í þessari könnun var spurt:
Á að leggja áherslu á kennslu ættjarðarljóða í grunnskólum?
Niðurstaðan var eftirfarandi:
Já: 90,43%
Nei: 6,52%
Hlutlaus: 3,04%
