
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing, í síðdegisútvarpinu, um ört vaxandi raforkuþörf gagnavera og gervigreindar og hvernig Ísland eigi að ráðstafa takmarkaðri raforku sinni. Kristinn sagði Ísland ekki hafa forsendur til að verða stórmiðstöð gervigreindar þótt landið henti vel fyrir rekstur gagnavera. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Gagnaverin hér en störfin annars staðar
Arnþrúður spurði hvort ódýr og endurnýjanleg raforka gæfi Íslendingum tækifæri til að byggja hér upp umfangsmikla starfsemi í kringum gagnaver og gervigreind.
Kristinn svaraði því neitandi.
Ísland hefði vissulega ýmsa kosti þegar kæmi að sjálfri staðsetningu gagnavera. Rafmagnið væri ódýrt og veðurfarið hentugt þar sem stöðugt og svalt loftslag drægi úr þörf fyrir kælingu. Það þýddi hins vegar ekki að sá virðisauki sem fylgir gervigreind og hugbúnaðarþróun yrði til á Íslandi. Gagnaver gæti staðið hér á landi á meðan hugbúnaðarvinnan, sérfræðiþekkingin og önnur verðmæt störf færu fram annars staðar.
Kristinn nefndi Indland sem dæmi um land þar sem gríðarlega mikil hugbúnaðarframleiðsla færi fram og benti einnig á mikla tækniþekkingu í Asíu.
Heimilin verða fyrst að hafa næga orku
Raforkan á Íslandi er ekki ótakmörkuð og Arnþrúður spurði hvernig ætti að forgangsraða þegar velja þyrfti á milli nýs gagnavers fyrir gervigreind, annarrar atvinnustarfsemi, orkuskipta og þarfa heimila og íslensks atvinnulífs. Kristinn sagði alveg ljóst að heimilin yrðu að hafa næga orku.
Landsvirkjun bæri síðan að horfa til hagsmuna þjóðarinnar í heild og beina orkunni þangað sem hún skapaði mestan virðisauka innanlands.
Þar skipti því ekki aðeins máli hvað kaupandi væri tilbúinn að greiða fyrir rafmagnið heldur hvað starfsemin skilaði íslensku samfélagi í störfum og afleiddri atvinnustarfsemi.
Spyr hvort nóg sé komið af gagnaverum
Kristinn hefur áður talað fyrir uppbyggingu gagnavera á Íslandi og sagði eina ástæðuna hafa verið að dreifa áhættunni og hafa atvinnulífið ekki of háð hefðbundinni stóriðju. Staðan væri hins vegar önnur þegar gagnaverin væru orðin jafn umfangsmikil og nú.
Hann spurði hvort Ísland væri ekki þegar komið með nóg af gagnaverum og hvort nú væri rétt að líta til fleiri atvinnukosta sem gætu skilað meiri virðisauka innanlands. Þar nefndi hann meðal annars landeldi og garðyrkju. Landeldi notaði talsvert rafmagn vegna dælingar en gæti jafnframt skapað mikla vinnslu og verðmæti hér á landi áður en fullunnin vara væri flutt út.
Fjöreggið í fleiri körfum
Kristinn lagði áherslu á að ekki væri skynsamlegt að beina sífellt stærri hluta raforkunnar í eina atvinnugrein. Þótt Ísland væri samkeppnishæft sem staðsetning fyrir gagnaver þyrfti að horfa á heildarávinninginn fyrir þjóðarbúið. Að hafa gagnaverið sjálft hér tryggði ekki að verðmætasta starfsemin í kringum gervigreindina yrði einnig hér.
Þess vegna væri mikilvægt að hafa fjöreggið í sem flestum körfum og ráðstafa raforkunni með tilliti til þess hvar hún skapaði mest verðmæti fyrir íslenskt samfélag.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
