Kristinn: Lestrarvandi geti aukið ásókn í samfélagsmiðla og ýtt undir ofbeldi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing í síðdegisútvarpinu um stöðu læsis, PISA-niðurstöður og mikilvægi þess að börn nái góðri lestrarfærni snemma. Kristinn telur erfiðleika með lestur skerða möguleika ungs fólks til að afla sér þekkingar og segir það geta aukið áhrif samfélagsmiðla og tengst ofbeldi, drykkju og reykingum meðal ungmenna. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Læsið má ekki vera vandamál þegar lengra er komið í námi

Kristinn sagðist hafa kennt í nær hálfa öld, fyrst í framhaldsskóla, síðan í Tækniskólanum og loks við Háskólann í Reykjavík. Hann hefði því fylgst lengi með þróun menntamála og sagði PISA-niðurstöðurnar verða sífellt dapurlegri.

Hann vildi ekki leggja mat á hvaða kennsluaðferð ætti að nota við lestrarkennslu en lagði mikla áherslu á að börn næðu góðri lestrarfærni sem allra fyrst. Fyrstu æviárin væru mikilvægt mótunarskeið og færni sem lærðist snemma sæti betur.

Þegar nemendur kæmu lengra í grunnskóla og síðar í framhaldsskóla ætti lesturinn ekki lengur að vera hindrun. Góð lestrarfærni væri forsenda þess að geta sjálfur aflað sér þekkingar, hvort sem áhuginn sneri að fjallaklifri, viðgerðum á gömlum traktor eða heilsusamlegu mataræði.

Samfélagsmiðlar mata fólk á efni

Kristinn sagði ungt fólk sem ætti erfitt með að afla sér hagnýtrar þekkingar með lestri leita frekar á samfélagsmiðla. Þar væri efni matreitt fyrir notandann án þess að hann þyrfti að leggja jafnmikið á sig við að hugsa og afla sér upplýsinga sjálfur.

Hann taldi það geta leitt til ákveðinnar hörnunar í hugsun þar sem fólk reyndi að líkja eftir þeim fyrirmyndum sem það sæi. Hjá drengjum gæti það birst í slagsmálum og ofbeldi en hjá stúlkum í mikilli áherslu á útlit. Hann nefndi einnig drykkju, reykingar og fréttir af sölu ólöglegs bótoxs í þessu samhengi.

Ábyrgð heimilanna skiptir einnig máli

Arnþrúður spurði hvort foreldrar þyrftu ekki að vera meira á varðbergi gagnvart því hvernig börnum þeirra reiddi af. Ef skortur á kunnáttu og lestrarfærni leiddi til þess að börn leituðu í slíkt lífsmynstur hlyti ábyrgðin ekki aðeins að liggja hjá skólunum.

Kristinn tók undir að heimilin skiptu miklu máli. Hann rifjaði upp umræðu frá þeim tíma þegar Finnland stóð mjög hátt í PISA-könnunum. Þá hefði kona sem búið hafði í Finnlandi hringt í Útvarp Sögu og bent á að munurinn fælist ekki fyrst og fremst í lengd kennaranáms heldur því að börn kæmu læs í skólann.

Kristinn sagði mikilvægt að börn læsu og lærðu heima og að lesið væri fyrir þau áður en þau gætu sjálf lesið.

Ekki öll börn búa við sömu aðstæður

Kristinn benti þó á að foreldrar væru jafn ólíkir og börnin sjálf. Ekki væri alltaf auðvelt fyrir skóla að ná samstarfi við foreldra og því væri skiljanlegt að reynt hefði verið að færa meira af náminu inn í skólann.

Hann sagðist ekki ætla að leggja faglegt mat á heimanám en sagði mikilvægt að öll börn hefðu jöfn tækifæri og viðunandi aðstöðu til náms.

Arnþrúður sagði jafnframt þurfa að horfa inn á við í samfélaginu og spyrja hver bæri ábyrgð á því að börn læsu, að lesið væri með þeim og fylgst með því hvernig þeim gengi.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila