
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing í síðdegisútvarpinu, um orkuskipti í skipaflutningum og þróun nýrra orkugjafa. Í viðtalinu hafnaði Kristinn þeirri hugmynd að rafknúin skip yrðu raunhæfur valkostur fyrir stærri skip og sagði að hvorki rafhlöður né svokallað rafeldsneyti stæðust tæknilegar og efnahagslegar kröfur sem gerðar væru til skipaflotans. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Rafhlöður geta ekki leyst olíuna af hólmi
Kristinn ræddi um frétt sem hann sá um skip sem átti að vera knúið áfram án olíu. Aðspurður um það sagði Kristinn að rafknúin skip gengju einfaldlega ekki upp þegar um stærri skip væri að ræða.
Hann sagði að rafhlöður með sambærilegt orkuinnihald og hefðbundið skipaeldsneyti yrðu svo stórar og þungar að nánast ekkert pláss yrði eftir fyrir farm eða aðstöðu fyrir áhöfn. Að hans mati útilokaði það að rafhlöður gætu leyst olíu af hólmi í hefðbundnum skipaflutningum.
Ammoníak yrði margfalt dýrara en dísilolía
Kristinn sagði að hugmyndir um að nýta ammoníak sem eldsneyti væru sama marki brenndar það tilheyrði svokölluðu rafeldsneyti sem framleitt væri með raforku og vetni og krefðist gríðarlegrar orku í framleiðslu.
Hann sagði að slíkt eldsneyti yrði að hans mati þrefalt til fjórfalt dýrara en dísilolía miðað við núverandi orkukostnað. Því stæðust ekki þær væntingar sem settar hefðu verið fram um að stór hluti skipaflotans yrði knúinn áfram með ammoníaki eða sambærilegu rafeldsneyti á næstu árum eða áratugum.
Telur umræðuna ekki byggða á tæknilegum forsendum
Í framhaldinu sagði Kristinn að umræðan um orkuskipti byggðist of oft á væntingum fremur en verkfræðilegum forsendum. Hann taldi að of fáir með tæknilega menntun kæmu að opinberri umræðu um orkumál og sagði að því færu fullyrðingar um nýja orkugjafa stundum lítið gagnrýndar. Hann nefndi jafnframt mikilvægi lestrarfærni og raunvísindamenntunar og sagði að góð undirstaða í þeim greinum væri forsenda þess að fólk gæti metið tæknileg álitaefni af eigin rammleik.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
