Kristinn Sigurjónsson: Starfslok Harðar Arnarsonar vegna froðufræða stjórnarinnar

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristinn Sigurjónsson, rafmagns- og efnaverkfræðing, í síðdegisútvarpinu í dag, um brotthvarf Harðar Arnarsonar úr starfi forstjóra Landsvirkjunar og þann ágreining sem kann að liggja þar að baki. Kristinn sagði líklegra að starfslokin tengdust því að Hörður hefði ekki verið auðsveipur gagnvart því sem hann kallar gæluverkefni og „froðufræði“ en því að hann væri karlmaður. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Ekki sannfærður um að kynið ráði

Fyrr í þættinum hafði Kristinn fjallað um þróun sem hann segir hafa átt sér stað í ráðningum og stjórnendastöðum þar sem konur hafi í auknum mæli verið ráðnar í stöður sem áður voru að mestu skipaðar körlum.
Kristinn sagði vel geta trúað því að staðan hefði verið önnur ef Hörður hefði verið kona en tók jafnframt skýrt fram að hann væri ekki viss um að verið væri að bola honum frá vegna þess að hann væri karlmaður.

Ekki ginnkeyptur gagnvart gæluverkefnum

Kristinn lýsti Herði Arnarssyni sem tæknimenntuðum rafmagnsverkfræðingi sem horfði fyrst og fremst á hvað borgaði sig, hvað væri rétt og hvað væri skynsamlegt frá tæknilegu og rekstrarlegu sjónarmiði.

Hann sagði það vera kost að hafa raungreinamenntaðan mann í forystu fyrirtækis á borð við Landsvirkjun þar sem ákvarðanir um raforkuverð, stóriðju og framtíðarsamninga krefðust mikillar þekkingar á mörkuðum og tæknilegum forsendum.

Hörður hefði að mati Kristins ekki verið ginnkeyptur gagnvart þeim verkefnum sem hann kallar gæluverkefni. Þar nefndi hann meðal annars mikla áherslu á vindorku og sagði slíka stefnu hluta af þeirri „froðufræði“ sem hann telur hafa orðið of ráðandi.

Ágreiningur um fær að kaupa orkuna gæti verið ástæðan

Arnþrúður sagði það skoðun Útvarps Sögu að ágreiningurinn innan Landsvirkjunar gæti snúist um, hverjir ættu að fá aðgang að takmarkaðri raforku fyrirtækisins og hverjum ætti að selja orkuna þar sem ásóknin sé mikil í gagnaver til þess að skapa meira öryggi fyrir gervigreindina. Gagnaverin á Íslandi væru í eigu bandarískra aðila núna og verið gæti að stjórnvöld vildu frekar selja Evrópuríkjum. Slíkt mál geti hæglega skapað ágreining milli æðstu manna. Þetta væri augljóslega pólitískt mál.

Hún nefndi í því sambandi gagnaver, gervigreind, bandaríska eigendur og mögulega aukna eftirspurn frá Evrópu. Þar væri stór pólitísk spurning um hvort orkan ætti að fara til þeirra sem greiddu hæsta verðið eða þeirra fyrirtækja sem skiluðu mestum ávinningi fyrir íslenskt samfélag.

Mikilvægt fyrir landeldi

Kristinn sagði ríkiseign Landsvirkjunar gera fyrirtækinu kleift að horfa lengra en eingöngu til markaðsverðs. Þar ætti að meta hvaða atvinnustarfsemi skapaði mestan virðisauka innanlands. Hann nefndi stóriðju, landeldi og fleiri atvinnugreinar þar sem raforkan skapaði störf og afleidda starfsemi.

Orkan fari þangað sem virðisaukinn er mestur

Kristinn sagði heimilin fyrst og fremst þurfa að hafa næga orku en Landsvirkjun bæri einnig að horfa til hagsmuna þjóðarinnar í heild. Orkan ætti að fara þangað sem mestur virðisauki yrði eftir í landinu og sagði hann þá stefnu hafa einkennt starf Harðar Arnarsonar.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila