
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu. Aðspurð sagði Kristrún að hún hafi fyrst fengið upplýsingar um árgreining hjá Landsvirkjun sem leiddi til starfsloka Harðar Arnarsonar forstjóra, sama dag og hann tilkynnti afsögn sína. Kristrún sagðist ekki hafa kynnt sér öll gögn málsins eða rætt við stjórn Landsvirkjunar. Hún hafnaði jafnframt því að ríkisstjórnin hefði beitt þrýstingi til að auka arðgreiðslur fyrirtækisins. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fundur með forstjóranum bar upp á afsagnardaginn
Arnþrúður spurði hvenær forsætisráðherra hefði fyrst fengið upplýsingar um ágreininginn í Landsvirkjun og aðdraganda starfsloka forstjórans.
Kristrún svaraði að hún hefði hitt Hörð á fundi sama dag og hann tilkynnti afsögn sína. Fundurinn hefði verið ákveðinn nokkrum vikum áður og það verið tilviljun að hann bæri upp á þennan dag.
Hún hefði síðar komist að því að Hörður hefði upphaflega óskað eftir fundinum til að ræða almennt stöðu fyrirtækisins. Ef fundurinn hefði farið fram fyrr væri ekki útilokað að ágreiningurinn hefði komið þar til umræðu.
Kristrún sagði Hörð ekki hafa veitt henni mikið ítarlegri upplýsingar en þær sem síðar hefðu komið fram í fjölmiðlum. Hún hefði skilið málið þannig að um væri að ræða uppsafnaðan ágreining um samskipti og stjórnarhætti innan fyrirtækisins.
Hefur ekki rætt við stjórn Landsvirkjunar
Arnþrúður spurði hvort forsætisráðherra hefði sjálf kynnt sér gögn málsins eða byggði mat sitt fyrst og fremst á skýringum fjármálaráðherra.
Kristrún sagðist hafa fengið upplýsingar frá fráfarandi forstjóra en ekki fundað með neinum stjórnarmanni Landsvirkjunar. Hún hefði heldur ekki séð sérstaka ástæðu til þess þar sem hún færi ekki formlega með vald yfir fyrirtækinu.
Hún benti á að fjármálaráðherra færi með eignarhlut ríkisins í Landsvirkjun og hún hefði sjálf ekki skipað stjórn fyrirtækisins.
Ágreiningurinn meðal annars um tiltekna ákvarðanatöku
Kristrún sagði þá mynd sem hún hefði af málinu einkum snúa að ágreiningi um fundarfyrirkomulag, samskipti stjórnar og forstjóra og tiltekna ákvarðanatöku. Hún þekkti þó ekki smáatriðin.
Stjórn Landsvirkjunar hefði aflað lögfræðiálits sem samkvæmt þeim upplýsingum sem Kristrún hefði fengið leiddi ekki í ljós að neitt athugavert hefði verið við stjórnarhætti fyrirtækisins.
Hafnar þrýstingi ríkisstjórnarinnar um auknar arðgreiðslur
Arnþrúður vakti máls á fjárhagsstöðu Landsvirkjunar sem væri mjög góð og spurði hvort ágreiningurinn innan stjórnarinnar og Harðar Arnarsonar, gæti tengst hugmyndum um aukna skuldsetningu Landsvirkjunar og hærri arðgreiðslur til ríkisins, þá væri hægt að skila hallalausum fjárlögum.
Kristrún sagðist ekki hafa upplýsingar um að slíkur efnislegur ágreiningur hefði verið milli stjórnar og forstjóra. Hún kvaðst hvorki sitja stjórnarfundi né fundi framkvæmdastjórnar og gæti því ekki fullyrt um samskipti þeirra.
Hún hafnaði því hins vegar afdráttarlaust að ríkisstjórnin, fjármálaráðherra eða hún sjálf hefðu beitt stjórn eða forstjóra Landsvirkjunar þrýstingi til að breyta arðgreiðslum fyrirtækisins.
Unnið eftir gildandi arðgreiðslustefnu
Kristrún sagði unnið eftir gildandi arðgreiðslustefnu. Samskipti fjármálaráðuneytisins við Landsvirkjun um arðgreiðslur hefðu snúist um upplýsingagjöf vegna áætlana ríkissjóðs en ekki fyrirmæli um rekstur fyrirtækisins.
Hún viðurkenndi að auknar arðgreiðslur gætu bætt afkomu ríkissjóðs en sagði ríkisstjórnina ekki stjórna þeim ákvörðunum.
Kristrún: Vill að stjórn fyrirtækisins meti hvenær ráða eigi nýjan forstjóra
Arnþrúður spurði hvort rétt væri að stjórn Landsvirkjunar lyki ráðningu nýs forstjóra á meðan stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis hefði til skoðunar samskipti fjármálaráðherra og stjórnarinnar í aðdraganda starfslokanna.
Kristrún svaraði að athugun þingnefndarinnar beindist að störfum og stjórnsýslu fjármálaráðherra en ekki að stjórn Landsvirkjunar. Stjórnin starfaði sjálfstætt og í ákveðinni fjarlægð frá ráðuneytinu.
Hún sagði því ekki vera í sínum verkahring að hafa afskipti af ráðningu nýs forstjóra. Ekki væri hægt að gagnrýna afskipti ráðherra af sjálfstæðum fyrirtækjum en ætlast síðan til þess að forsætisráðherra gripi sjálf inn í ráðningarferlið.
Arnþrúður spurði jafnframt hvort hagsmunum fyrirtækisins væri betur borgið með því að bíða þar til frekari upplýsingar lægju fyrir.
Kristrún sagði stjórnina verða að vega og meta hvað þjónaði fyrirtækinu best. Óvissa fylgdi bæði ágreiningi innan fyrirtækisins og því að hafa staðgengil í forstjórastóli í stað fastráðins forstjóra.
Gagnsæi við ráðningu forstjóra til umræðu
Arnþrúður gagnrýndi skort á gagnsæi í ráðningarferlinu og benti á að ekki stæði einu sinni til að birta nöfn umsækjenda um forstjórastöðuna. Hún vísaði jafnframt til áherslu OECD á gagnsæi í stjórnun fyrirtækja.
Kristrún sagðist ekki þekkja nákvæmlega reglurnar um birtingu upplýsinga um umsækjendur.
Hún rifjaði upp að stjórnir opinberra fyrirtækja hefðu áður verið skipaðar með beinni aðkomu stjórnmálaflokka. Síðar hefði lögum verið breytt til að draga úr pólitískum tengslum og styrkja sjálfstæði stjórnanna.
Kristrún sagði að þegar sjálfstæði stjórna hefði verið aukið yrðu stjórnvöld jafnframt að virða það fyrirkomulag.
Hún kvað mikilvægt að skýrt yrði hvort ágreiningurinn innan Landsvirkjunar hefði eingöngu snúist um fagleg skoðanaskipti eða hvort eitthvað alvarlegra lægi að baki. Um leið yrði að treysta stjórn fyrirtækisins til að meta stöðuna og taka ákvarðanir í samræmi við hagsmuni þess.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
