
Í tilefni af umræðunni um Evrópusamband og þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi viðræður við ESB var í dag endurflutt viðtal Arnþrúðar Karlsdóttur við Kristrúnu Frostadóttur sem fram fór rétt fyrir kosningar í nóvember 2024. Í þættinum sagði Kristrún meðal annars að ekki væri kominn tími á að opna á viðræðræður þar sem leggja þyrfti áherslu á uppbyggingu innanlands fyrst. Þá lagðu hún áherslu á að umræðan um Evrópusambandið væri upplýst og yfirveguð. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Frétt úr þættinum má lesa hér að neðan.
Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingarinnar segir að Evrópusambandsaðild sé ekki forgangsmál í komandi kosningum. Hún leggur áherslu á að á næsta kjörtímabili verði einblínt á innlend umbótamál á borð við efnahagsstöðugleika, húsnæðislausnir og bætt heilbrigðiskerfi. Hún telur að jafnaðarmenn eigi að sameinast um þessi mál óháð afstöðu til Evrópusambandsins. Þetta var meðal þess sem fram kom í máli Kristrúnar í Síðdegisútvarpinu í viðtali við Arnþrúði Karlsdóttur.
Slík mál þurfa að fara í bindandi þjóðaratkvæðagreiðslu
Kristrún segir að áður en farið verði í þjóðaratkvæðagreiðslu um aðild verði að tryggja að nægjanleg og upplýst umræða fari fram. Hún bendir á að slík þjóðaratkvæðagreiðsla sé bindandi og því sé nauðsynlegt að þjóðin hafi skýra sýn á kosti og galla aðildar. Hún telur að Ísland ætti aðeins að ganga í Evrópusambandið sem stolt þjóð í sterkri samningsstöðu en ekki í örvæntingu vegna innlendra vandamála.
Evrópusambandið hefur tekið miklum breytingu síðustu áratugina og ný ríki sem vilja aðild eru í erfiðri stöðu efnahagslega
Að mati Kristrúnar hefur Evrópusambandið tekið miklum breytingum á undanförnum tveimur áratugum. Hún bendir á að samsetning sambandsins sé ólík þeirri sem var í upphafi og að ný ríki sem sækja um aðild séu yfirleitt í erfiðri stöðu efnahagslega. Hún segir að slíkar breytingar kalli á að Ísland hugi vel að eigin hagsmunum og tryggi að aðild verði Ísland í hag ef af yrði.
Samfylkingin evrópusinnaður flokkur en ekki kominn tími til að opna aðildarviðræður því byggja þurfi upp fyrst hér innanlands
Kristrún segir að Samfylkingin sé áfram Evrópusinnaður flokkur en að hún telji að tíminn sé ekki kominn til að opna aðildarviðræður á næsta kjörtímabili. Hún leggur þó áherslu á að nota tímann til að styrkja innviði og efnahagslega stöðu landsins og skapa grundvöll fyrir uppbyggilega umræðu um Evrópusambandið þegar þjóðin er tilbúin til að taka ákvörðun. Með þessu vill Samfylkingin tryggja að aðildarferlið verði tekið með ábyrgum hætti ef það kemur til álita í framtíðinni.
Hlusta má á ítarlegri umræður um málið í spilaranum hér að neðan
