Kvarta til Persónuverndar vegna gjaldtöku Creditinfo fyrir lánshæfismat

Hagsmunasamtök heimilanna hafa sent Persónuvernd kvörtun vegna gjaldtöku Creditinfo Lánstrausts hf. fyrir aðgang einstaklinga að eigin lánshæfismati. Samtökin gagnrýna að fyrirtækið krefji nú alla notendur um greiðslu fyrir að skoða eigið lánshæfismat, en áður hafi verið hægt að fá slíkan aðgang gjaldfrjálst gegn því að samþykkja að deila svokölluðum viðbótarupplýsingum með fyrirtækinu.

Segja gjaldtökuna brjóta gegn réttindum einstaklinga

Samkvæmt Hagsmunasamtökum heimilanna kostar nú 2.900 krónur að fá aðgang að eigin lánshæfismati hjá Creditinfo. Einstaklingar geta þó fengið lægra verð, 1.990 krónur, ef þeir samþykkja að deila frekari upplýsingum með fyrirtækinu sem notaðar eru við vinnslu lánshæfismats.

Samtökin telja þessa framkvæmd ólögmæta og segja hana torvelda einstaklingum að nýta lögbundin réttindi sín samkvæmt persónuverndarlögum, þar á meðal rétt til aðgangs að eigin persónuupplýsingum, leiðréttingar upplýsinga, andmæla og endurskoðunar á lánshæfismati.

Þá telja samtökin að með því að bjóða lægra verð gegn samþykki fyrir aukinni vinnslu persónuupplýsinga sé grafið undan vernd persónuupplýsinga með ólögmætum hætti.

Gagnrýna stöðu fyrirtækisins

Í yfirlýsingu frá Hagsmunasamtökum heimilanna segir að óforsvaranlegt sé að fyrirtæki í einokunarstöðu á vinnslu upplýsinga um fjárhagsmálefni og lánstraust landsmanna innheimti gjald fyrir aðgang einstaklinga að eigin upplýsingum.

Samtökin segja neytendur aldrei hafa veitt samþykki fyrir því að fjárhagsupplýsingar þeirra yrðu gerðar að söluvöru og telja að draga verði skýr mörk um slíka starfsemi.

Þau leggja jafnframt áherslu á að lögbundin réttindi neytenda til aðgangs að eigin persónuupplýsingum megi ekki verða tekjulind fyrirtækja.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila