Kvikmyndahátíð framhaldsskólanna haldin í Bíó Paradís

Kvikmyndahátíð Framhaldskólanna verður haldin með pompi og prakt í Bíó Paradís16 – 17 mars næstkomandi. KHF stendur fyrir hátíðinni og er hún skipulögð af nemendum í Fjölbrautaskólanum við Ármúla fyrir framhaldsskólanemendur.

Hátíðarstjóri er Róbert Christopher S Scobie. en ásamt honum koma fjölmargir að hátíðinni. KHF hefur verið haldin árlega síðan 2015 og var hún fyrst haldin í Fjölbrautarskólanum við Ármúla og eftir það var hún færð í Bíó Paradís.

Hugmyndin að hátíðinni varð til í áfanga í FÁ sem fjallar um viðburðastjórnun, þ.e. uppsetningu og skipulag viðburða. Öll hátíðin er skipulögð af nemendum. Þeir sjá um fjármögnun, hönnun á plakati, sýningarskrá, heimasíðu og uppsetningu á dagskrá hátíðarinnar. Víðsvegar af landinu berast stuttmyndir á hátíðina og stefnan er að sem flestir framhaldsskólar taki þátt svo allir framhaldsskólanemendur eru hvattir til að senda mynd og vera virkir þáttakendur í þessum skemmtilega viðburði. Fjölbreytnina skortir ekki þar sem myndirnar koma frá allskonar landshlutum, allskonar einstaklingum og eru í mismunandi flokkum.

Hvert ár koma þekktir heiðursgestir á hátíðina og meðal þeirra hafa verið Ragnar Bragason, Jón Gnarr og Eva Sigurðardóttir. Í ár er engin undantekning þar sem von er á heiðursgestum sem munu bæði miðla af eigin reynslu og skemmta hátíðargestum svo á KHF gefst gott tækifæri til þess að kynnast fremsta kvikmyndagerðarfólki landsins. Einnig munu þekktir grínistar heimsækja hátíðina og skemmta hátíðargestum. Aðgangur á hátíðina er ókeypis.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila