Kvikmyndahátíð Rómönsku Ameríku haldin í fjórða sinn í Bíó Paradís

Kvikmyndahátíðin Latin American Film Festival Reykjavík verður haldin í Bíó Paradís í fjórða sinn í september. Hátíðin leggur áherslu á samtímakvikmyndir frá Rómönsku Ameríku og verk kvenleikstjóra en auk kvikmyndasýninga verður boðið upp á tónlist, mat og ýmsa viðburði.

Á dagskrá hátíðarinnar eru meðal annars kvikmyndirnar Sad Girlz eftir Fernöndu Tovar og Forever Your Maternal Animal eftir Valentinu Maurel.

Sad Girlz hlaut tvenn verðlaun á kvikmyndahátíðinni í Berlín fyrr á þessu ári. Forever Your Maternal Animal hlaut verðlaun fyrir bestu leikkonu í aðalhlutverki í Un Certain Regard hluta kvikmyndahátíðarinnar í Cannes 2026.

Fuglar og menn í Loðmundarfirði

Íslenska heimildamyndin Fuglar (og menn) er einnig komin til sýninga í Bíó Paradís.

Myndin fjallar um hjónin Ólaf og Jóhönnu í Loðmundarfirði og sérstakt sambýli þeirra við æðarfugla sem koma þangað til að verpa og ala upp unga sína í friðsælu umhverfi.

Fylgst er með lífi fuglanna og samspili þeirra við hjónin þar sem náttúran ræður ferðinni og skiptast á skin og skúrir. Myndin er sýnd á íslensku með enskum texta.

Ungur Anthony Bourdain í Provincetown

Kvikmyndin Tony fjallar um Anthony „Tony“ Bourdain þegar hann er 19 ára matreiðslumaður og heldur til Provincetown í leit að reynslu og ævintýrum.

Þar kynnist hann óreiðukenndum heimi veitingahúsaeldhússins og litríkum hópi starfsfólks. Sumarið verður örlagaríkt og á eftir að hafa mikil áhrif á þá braut sem Bourdain tekur í lífinu.

Romy og Michele snúa aftur

Gamanmyndin Romy and Michele’s High School Reunion verður sýnd á sérstakri föstudagspartísýningu 18. september kl. 21:00.

Myndin fjallar um gömlu skólasysturnar Romy og Michele sem ákveða að mæta á 10 ára útskriftarafmæli sitt og sannfæra fyrrverandi skólafélaga um að þær hafi náð miklum árangri. Þær þykjast því vera auðugar athafnakonur sem hafi fundið upp Post-it miða.

Hefndarsögur á Svörtum sunnudegi

Argentínska kvikmyndin Wild Tales verður síðan sýnd á Svörtum sunnudegi 20. september kl. 21:00.

Myndin samanstendur af 6 sögum þar sem hefnd, reiði og fáránlegar aðstæður leiða persónurnar inn á óvæntar og oft kolsvartar kómískar brautir.

Smelltu hér til þess að skoða dagskrána.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila