Lækka þarf æfingagjöld og bæta íþróttaaðstöðu í Reykjanesbæ

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Vilhjálm Árnason oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ og þingmann flokksins í síðdegisútvarpinu um íþróttastarf, æfingagjöld og uppbyggingu íþróttamannvirkja í Reykjanesbæ. Þar kom fram að Sjálfstæðisflokkurinn vilji lækka kostnað fjölskyldna vegna íþróttaiðkunar barna og ráðast í frekari uppbyggingu íþróttaaðstöðu fyrir bæði börn, ungmenni og eldri borgara. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Íþróttir mikilvægar fyrir samfélagið

Vilhjálmur sagði íþróttastarf gegna lykilhlutverki í samfélaginu og vera eina mikilvægustu forvörn sem sveitarfélagið gæti stutt við. Hann sagði íþróttir ekki aðeins efla heilsu barna og ungmenna heldur einnig styrkja félagslega þátttöku og aðlögun fólks að samfélaginu. Í viðtalinu sagði hann að í Reykjanesbæ væri fjölbreytt íþróttastarf með hátt í 30 deildir eða greinum starfandi á svæðinu. Þar nefndi hann meðal annars knattspyrnu, körfubolta, sund, fimleika, dans, taekwondo, júdó, pílukast, þríþraut, hlaup og mótorsport.

Hann sagði jafnframt að golfíþróttin hefði styrkst mikið á Suðurnesjum og svæðið væri orðið eitt stærsta golfsvæði landsins með 8 golfvelli í stuttri fjarlægð hver frá öðrum.

Vill lækka æfingagjöld barna

Vilhjálmur sagði að sífellt fleiri fjölskyldur ættu erfitt með að standa undir kostnaði vegna íþróttaiðkunar barna sinna. Að hans mati væri mikilvægt að tryggja að öll börn gætu tekið þátt í íþróttastarfi óháð efnahag foreldra sinna. Sjálfstæðisflokkurinn vill lækka æfingagjöld og styrkja rekstrarumhverfi íþróttafélaga svo félögin geti haldið úti öflugu starfi án þess að kostnaður lenti í auknum mæli á foreldrum.

Í viðtalinu kom einnig fram að flokkurinn vilji efla aðstöðu fyrir íþróttafélög, meðal annars með uppbyggingu fimleikaaðstöðu og endurbótum á eldri íþróttamannvirkjum.

Styðja þarf betur við íþróttaastarf eldri borgara og fatlaðra

Vilhjálmur sagði mikilvægt að sveitarfélagið styddi betur við íþrótta- og tómstundastarf eldri borgara og fatlaðs fólks. Hann nefndi sérstaklega starfsemi Nes félagsins og fjölbreytta þátttöku eldri borgara í hreyfingu og útivist. Hann sagði Sjálfstæðisflokkinn vilja taka upp að nýju verkefni sem fælu í sér reglulegar heilsufarsmælingar, ráðgjöf og stuðning fyrir eldri borgara samhliða aukinni áherslu á tómstundir og hreyfingu.

Jafnframt sagði hann mikilvægt að bæta göngustíga, lýsingu og útivistarsvæði í bænum svo fleiri gætu stundað hreyfingu allt árið.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila