
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Bjarnason, fyrrverandi sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra, í síðdegisútvarpinu um leiðbeiningar Landskjörstjórnar vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna við Evrópusambandið. Jón sagði Landskjörstjórn enga heimild hafa til að lofa annarri þjóðaratkvæðagreiðslu og að engin bindandi trygging væri fyrir því að þjóðin fengi síðar að kjósa um aðildarsamning. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Landskjörstjórn fer út fyrir hlutverk sitt
Jón sagðist hafa farið yfir leiðbeiningar Landskjörstjórnar og gagnrýndi að þar væri fjallað um hugsanlega síðari þjóðaratkvæðagreiðslu. Núverandi kosning snerist aðeins um hvort halda ætti aðildarviðræðunum áfram og Landskjörstjórn gæti ekki ákveðið hvað gerðist að þeim loknum. Alþingi yrði að koma að þeirri ákvörðun.
Engin trygging fyrir því að önnur þjóðaratkvæðagreiðsla fari fram
Arnþrúður spurði hvort tryggt væri að þjóðin fengi að greiða atkvæði öðru sinni ef meirihluti samþykkti áframhaldandi viðræður. Jón svaraði því til að engin slík trygging væri fyrir hendi.
Hvorki hægt að lofa annari þjóðaratkvæðagreiðslu né breytingum á stjórnarskrá
Jón sagði næstu ríkisstjórn ekki bundna af yfirlýsingum núverandi stjórnvalda. Viðræðurnar gætu staðið lengur en eitt kjörtímabil og önnur ríkisstjórn tekið við áður en þeim lyki.
Hann vísaði til þess að forsætisráðherra hefði sagt að síðar yrði metið hvort halda ætti aðra þjóðaratkvæðagreiðslu. Slíkt mat væri ekki bindandi fyrirheit um að kosning færi fram. Sama ætti við um yfirlýsingar um stjórnarskrárbreytingu þar sem ekki væri hægt að ákveða fyrir fram hvað Alþingi samþykkti síðar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
