
Gengið hefur verið frá samningi um tímabundna leigu og rekstur 24 skammtímahjúkrunarrýma á hjúkrunarheimilinu Hlévangi í Reykjanesbæ sem verður opnað að nýju næsta haust. Rýmin eru ætluð einstaklingum sem lokið hafa meðferð á Landspítala og hafa fengið færni- og heilsumat. Markmiðið er að létta álagi af bráðamóttöku spítalans með því að færa sjúklinga sem ekki þurfa lengur sjúkrahúsinnlögn í viðeigandi hjúkrunarrými.
Hlévangur lokaði um áramót
Hlévangi var lokað um síðustu áramót þegar nýtt hjúkrunarheimili Hrafnistu fyrir 80 íbúa var tekið í notkun við Nesvelli í Reykjanesbæ.
Í kjölfarið hófst vinna við að skoða hvort hægt væri að opna Hlévang tímabundið á ný vegna þrýstings á Landspítala. Fram kemur að ráðast hafi þurft í umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu til að laga það að þörfum íbúa og starfsfólks.
Húsnæði Hlévangs er í eigu Reykjanesbæjar en samkvæmt samningi við félags- og húsnæðismálaráðuneytið verður það leigt til tveggja ára með möguleika á framlengingu. Heilbrigðisráðuneytið mun sjá um búnað og fjármögnun rekstrarins en Heilbrigðisstofnun Suðurnesja annast reksturinn.
Samtals 169 rými í haust
Skammtímahjúkrunarrýmin eru ætluð einstaklingum sem bíða varanlegs pláss á hjúkrunarheimili eftir útskrift af Landspítala. Með þessu á að tryggja þeim þjónustu og aðbúnað sem uppfyllir sömu kröfur og á almennum hjúkrunarheimilum í stað þess að þeir dvelji áfram á sjúkrahúsdeildum þar sem pláss skortir.
Í mars voru 100 skammtímahjúkrunarrými opnuð í Urðarhvarfi. Samhliða þeirri opnun var 45 rýmum á Vífilsstöðum lokað tímabundið vegna endurbóta en þau eiga að opna aftur í júní.
Þegar rýmin á Hlévangi, Vífilsstöðum og í Urðarhvarfi verða öll komin í notkun í haust munu samtals 169 skammtímahjúkrunarrými standa Landspítala til boða. Raunfjölgun rýma á árinu verður þá 124.
