
Laufdal og Drangar hf. undirrituðu þann 27. apríl síðastliðinn viljayfirlýsingu um samstarf vegna uppbyggingar verkefnisins Miðtún 1 í Grímsnes- og Grafningshreppi. Með undirrituninni hefjast formlegar viðræður milli félaganna um áframhaldandi þróun svæðisins.
Fyrir hönd Laufdals skrifuðu undir Eyjólfur Fannar Eyjólfsson og Nökkvi Páll Jónsson en fyrir hönd Dranga undirritaði Auður Daníelsdóttir, forstjóri félagsins. Viðstödd undirritunina voru einnig Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, og Fjóla Steindóra Kristinsdóttir sveitarstjóri.
Stefnt að 700 fermetra atvinnuhúsnæði
Samkvæmt viljayfirlýsingunni er stefnt að byggingu um 700 fermetra atvinnuhúsnæðis fyrir verslun ásamt tilheyrandi frágangi lóðar.
Jafnframt er gert ráð fyrir samræmdri tímaáætlun vegna skipulags og framkvæmda, auk áframhaldandi viðræðna um frekari uppbyggingu á svæðinu, meðal annars þjónustuinnviði, bílastæði og orkutengda innviði.
Markmið verkefnisins er að byggja upp þjónustukjarna sem geti mætt aukinni eftirspurn eftir verslun og þjónustu á svæðinu.
Segja svæðið bjóða upp á vaxandi tækifæri
Eyjólfur Fannar Eyjólfsson, meðeigandi Laufdals, segir undirritunina mikilvægt skref í áframhaldandi þróun Miðtúnsreitsins. Hann segir unnið hafa verið markvisst að þróun svæðisins undanfarin ár og að skýr tækifæri séu til staðar til að efla þjónustugrunn þess í takt við vaxandi umsvif á svæðinu.
Auður Daníelsdóttir, forstjóri Dranga, segir samstarfið skapa góðan grundvöll fyrir uppbyggingu á svæðinu og að aukin áhersla á þjónustuinnviði falli vel að markmiðum félagsins um bætta þjónustuupplifun fyrir viðskiptavini.
Hótel með allt að 100 herbergjum fyrirhugað
Miðtún 1 er hluti af stærra þróunarverkefni sem nær til Miðtúns 1–11 þar sem unnið er að uppbyggingu verslunar, þjónustu og ferðaþjónustu.
Samkvæmt áformunum verða lóðirnar Miðtún 3–9 nýttar undir verslunar- og þjónustustarfsemi með möguleika á íbúðum á efri hæðum. Þá er sérstök áhersla lögð á Miðtún 11 þar sem gert er ráð fyrir uppbyggingu hótels með allt að 100 herbergjum.
Svæðið er staðsett á einu fjölfarnasta ferðamannasvæði landsins og er verkefninu ætlað að styrkja þjónustuframboð á Suðurlandi og mæta aukinni eftirspurn frá ferðamönnum.
Sveitarfélagið styður verkefnið
Ása Valdís Árnadóttir, oddviti Grímsnes- og Grafningshrepps, segir uppbyggingu af þessu tagi styðja við áframhaldandi þróun svæðisins og bæta þjónustu fyrir íbúa, fasteignaeigendur og ferðamenn.
Hún segir verkefnið falla vel að stefnu sveitarfélagsins um að efla innviði og skapa forsendur fyrir sjálfbærum vexti í takt við þróun svæðisins.
