
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Eirík S. Svavarsson, hæstaréttarlögmann og varaþingmann Miðflokksins, í síðdegisútvarpinu í dag, um samningsbrotamál ESA gegn Íslandi vegna bókunar 35. Eiríkur sagði stjórnvöld eiga að leggja frumvarpið um bókun 35 til hliðar, taka af fullum krafti til varna fyrir EFTA-dómstólnum og fá úr því skorið hvort krafa ESA eigi rétt á sér. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
ESA gerði engar athugasemdir í 25 ár
Ágreiningurinn um íslenska innleiðingu bókunar 35 er ekki ný en Eiríkur lagði áherslu á að fyrstu 25 ár EES-samningsins hefði íslenska fyrirkomulagið gengið athugasemdalaust af hálfu ESA.
Íslendingar innleiddu bókunina sem túlkunarreglu en ekki forgangsreglu. Formlegar athugasemdir komu ekki fram fyrr en í desember 2017 og síðan þá hefur staðið ágreiningur milli ESA og íslenskra stjórnvalda.
Nú hefur ESA sent málið sem samningsbrotamál til EFTA-dómstólsins. Eiríkur sagði það skapa réttan farveg til að fá niðurstöðu í þeim grundvallarspurningum sem deilan snýst um.
Frumvarpið lagt til hliðar meðan málið er rekið
Að mati Eiríks væri rangt að bregðast við málshöfðuninni með því að samþykkja frumvarp Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur, utanríkisráðherra um bókun 35.
Fyrst eigi að láta reyna á málið fyrir EFTA dómstólnum. Ísland eigi að skipa sterkt málsvarnarteymi og halda fram þeim rökum sem íslensk stjórnvöld hafi fyrir þeirri leið sem farin var við innleiðingu bókunarinnar.
Arnþrúður benti á að með þeirri leið yrði ágreiningurinn lagður fyrir aðila sem gæti skorið úr honum í stað þess að deilan héldi áfram innan stjórnmálanna og á meðal þjóðarinnar.
Eiríkur tók skýrt fram að hann gæti ekki fullyrt að Ísland myndi vinna málið. Það breytti þó ekki því að þetta væri að hans mati rétti farvegurinn til að fá svör.
Vill beita sömu aðferð og í Icesave
Eiríkur líkti nálguninni við það sem gert var í Icesave-deilunni. Þar hefði meginmálið verið að láta fyrst reyna á hvort krafan á hendur Íslandi væri lögmæt áður en tekin væri ákvörðun um hvernig ætti að bregðast við henni.
Hann sagði sömu hugsun eiga við nú. Ísland ætti ekki að fallast fyrirfram á kröfu ESA heldur fá úr því skorið hvort hún standist og hvaða áhrif stjórnskipuleg sérstaða Íslands hafi á málið.
Vill fá Carl Baudenbacher sem leiðtoga fyrir málflutning Íslands
Síðar í samtalinu sagði Eiríkur rétt að setja saman hóp sérfræðinga og nefndi sérstaklega Carl Baudenbacher, fyrrverandi forseta EFTA-dómstólsins, sem mann sem hann vildi sjá í lykilhlutverki við málflutning Íslands.
Að hans mati á að reka málið skipulega, fá niðurstöðu EFTA-dómstólsins og taka síðan næstu ákvarðanir á grundvelli hennar.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
