Leigubremsa getur hækkað leiguverð

Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Guðlaug Þór Þórðarson og Sigurð Örn Hilmarsson, þingmenn Sjálfstæðisflokksins, í þættinum Skipulagsmál, um húsnæðismarkaðinn og fyrirhugaða leigubremsu. Sigurður sagði leigubremsu hvorki fjölga íbúðum né lækka leiguverð og taldi að hún gæti þvert á móti leitt til hærri leigu. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Leigusalar gætu hækkað leiguna fyrirfram

Sigurður sagði frumvarpið um leigubremsu ganga út á að takmarka reglulegar hækkanir á leigu. Slík aðgerð tæki hins vegar ekki á grunnvandanum, sem væri framboð húsnæðis.

Hann taldi hættu á að leigusalar myndu horfa fram á við og taka væntanlega verðbólgu inn í leiguverðið áður en hömlurnar tækju gildi.

Ef gert væri ráð fyrir 7% verðbólgu næsta árið gæti leigusali til dæmis ákveðið að hækka leiguna um 7,5% strax til að hafa borð fyrir báru. Leigjandinn bæri þá kostnaðinn frá upphafi.

Fjölgar hvorki íbúðum né lækkar verðið

Sigurður sagði stjórnvöld fremur þurfa að skapa skilyrði fyrir meira framboði og lægri kostnaði við uppbyggingu. Hann lagði áherslu á lægri álögur og minna regluverk svo bæði húsnæði, vörur og þjónusta gætu orðið á viðráðanlegra verði.

Hann vísaði einnig til þess að sumir hagfræðingar hefðu varað mjög eindregið við leigubremsu og sagði málið að sínu mati snúast um grundvallaratriði í hagfræði.

Flestir á leigumarkaði vilja eignast húsnæði

Sigurður sagði að hann væri á þeirri skoðun að fleiri ættu að eiga möguleika á að eignast eigið húsnæði. Hann vísaði til könnunar þar sem aðeins 8% þeirra sem væru á leigumarkaði vildu vera þar áfram. Hjördís benti á að samkvæmt því vildu 92% frekar annan húsnæðiskost.

Þá sagði Guðlaugur stefnu Sjálfstæðisflokksins byggja á því að auðvelda fólki að eignast húsnæði með því að lækka álögur og draga úr kostnaði sem regluverk legði á uppbyggingu.

Meiri áhersla á framboð húsnæðis

Að hans mati ætti lausnin því ekki að felast í því að takmarka verðhækkanir með valdboði heldur fjölga íbúðum og bæta skilyrði á markaðnum. Leigubremsa gæti annars haft öfug áhrif við það sem stefnt væri að og leitt til þess að leiguverð hækkaði fyrr eða meira en ella.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila