Líflegt skáksumar um land allt með fjölbreyttu mótahaldi

Kristján Örn Elíasson ræddi við Gauta Pál Jónsson, sagnfræðing og ritstjóra tímaritsins Skákar í þættinum Við skákborðið um fjölbreytt mótahald í íslensku skáklífi yfir sumarmánuðina. Fram kom að sífellt fleiri mót væru haldin víða um land, þátttaka erlendra skákmanna færi vaxandi og skákferðamennska hefði eflst á undanförnum árum. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Mótahald um allt land

Í viðtalinu var farið yfir fjölda skákmóta sem fram undan eru. Þar á meðal var minningarmót Sigurðar Daníelssonar á Rauðarhöfn, þar sem tefldar verða 15 mínútna skákir með þriggja sekúndna viðbót á hvern leik. Einnig var rætt um mót á Húsavík, mánaðarmót á Haugum, mót Vinaskákfélagsins og fleiri viðburði sem haldnir verða víðs vegar um landið.

Gauti sagði nú hægt að ferðast um Ísland yfir sumarið og finna skákmót á mörgum stöðum. Að hans mati væri þetta ánægjuleg breyting frá fyrri árum þegar starfsemi skákhreyfingarinnar dróst gjarnan saman yfir sumarið.

Erlendir keppendur og skákferðamenn

Rætt var um aukna þátttöku erlendra skákmanna á íslenskum mótum. Á mótum á Húsavík hafi meðal annars verið keppendur frá Spáni, Þýskalandi, Póllandi og Argentínu, auk íslenskra skákmanna. Sumir þeirra séu hér á landi vegna vinnu eða náms en aðrir komi sérstaklega til að taka þátt í skákmótum.

Þá var einnig fjallað um skákferðamenn sem skipuleggja Íslandsferðir sínar í kringum mót. Sem dæmi var nefnt Hótel Mývatn-mótið sem hefur laðað að bæði íslenska og erlenda keppendur.

Öflugra skáksamfélag

Í þættinum kom einnig fram að upplýsingagjöf um skákviðburði hefði batnað verulega. Áður fyrr hafi sumarið einkennst af fáum mótum en nú sé auðvelt að fylgjast með viðburðum á netinu og finna mót um land allt. Að mati Gauta endurspeglar það öflugra skáksamfélag og meiri virkni innan hreyfingarinnar en áður.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila