Lilja Alfreðs: Ríkisstjórnin sendir heimilunum reikninginn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður Framsóknarflokksins, gagnrýndi ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur harðlega í miðstjórnarræðu sinni á Laugarbakka í dag. Hún sagði ríkisstjórnina hafa brugðist í efnahagsmálum, aukið álögur á heimilin og landsbyggðina og skapað óvissu um framtíð Landsvirkjunar. Hún gagnrýndi jafnframt hagsmunagæslu Íslands í utanríkismálum og málflutning utanríkisráðherra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið.

„Tvö ár eru liðin af kjörtímabilinu og verðbólgan er hærri en þegar ríkisstjórnin tók við. Við höfum glatað tveimur mikilvægum árum. Ríkisstjórnin skilar ekki bara auðu í efnahagsmálum, hún er beinlínis skaðleg,“ sagði Lilja.

Hallalaus fjárlög á kostnað heimilanna

Lilja benti á að verðbólga hefði mælst 5,9% í október og stýrivextir væru enn 8%. Háir vextir bitnuðu á fjölskyldum og fyrirtækjum, drægju úr fjárfestingu og gerðu ungu fólki erfiðara fyrir að koma undir sig fótunum.

Hún gagnrýndi fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027 og sagði ríkisstjórnina ætla að ná jafnvægi í ríkisfjármálum með skattahækkunum, auknum gjöldum og niðurfellingu vaxtabóta í stað skynsamlegrar forgangsröðunar.

„Ríkisstjórnin talar mikið um hallalaus fjárlög. En það er grundvallarmunur á því að ná jafnvægi með skynsamlegri forgangsröðun og því að senda reikninginn einfaldlega áfram til heimilanna.“

Hún vísaði til Heimilissáttar Framsóknar og reiknivélarinnar utreikningur.is, sem flokkurinn hefur kynnt til að sýna áhrif ákvarðana ríkisstjórnarinnar á fjárhag heimila. Lilja sagði fjárlagafrumvarpið fremur minna á stefnu nýfrjálshyggjuflokks en jafnaðarmannaflokks.

Auknar álögur þrengi að landsbyggðinni

Lilja sagði stefnu ríkisstjórnarinnar bitna sérstaklega á íbúum landsbyggðarinnar. Hún nefndi áform um hækkun kílómetragjalds, kolefnisgjalds og bifreiðagjalds, auk aukinna gjalda á ferðaþjónustu og breytinga á opinberri þjónustu.

Hún lagði áherslu á að öflug landsbyggð væri þjóðhagslegt hagsmunamál og að stjórnvöld yrðu að taka tillit til ólíkra aðstæðna fólks eftir búsetu.

„Þessi stefna ríkisstjórnarinnar þrengir augljóslega að fólkinu á landsbyggðinni! Við segjum nei við þessari stefnu og höfnum því að kljúfa þjóðina með þessum hætti. Við erum ein þjóð, í einu landi!“

Krefst þess að ríkisstjórnin láti Landsvirkjun í friði

Lilja gagnrýndi einnig vinnubrögð ríkisstjórnarinnar í málefnum Landsvirkjunar og brotthvarf Harðar Arnarsonar eftir 17 ára starf sem forstjóri fyrirtækisins.

Hún benti á að Landsvirkjun hefði greitt ríkissjóði um 108 milljarða króna í arð frá árinu 2020 og sagði mikilvægt að tryggja áfram faglega stjórnun og sjálfstæði fyrirtækisins.

Lilja beindi gagnrýni sinni sérstaklega að Viðreisn og sagði sérhagsmunastefnu flokksins ráða för þrátt fyrir fyrri yfirlýsingar um að almannahagsmunir skyldu ganga framar sérhagsmunum.

„Landsvirkjun er í eigu þjóðarinnar og Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar! Ég vil segja við ríkisstjórnina: Látið Landsvirkjun í friði! Og við fjármálaráðherra vil ég segja: Daði, það er bannað að plata!“

Telur utanríkisráðherra hafa rangmetið alþjóðastöðuna

Lilja gagnrýndi málflutning utanríkisráðherra í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um Evrópusambandið. Hún sagði ráðherrann hafa lagt áherslu á breytt öryggisumhverfi og óvissu í samskiptum við Bandaríkin til að rökstyðja að flýta bæri atkvæðagreiðslunni.

Að hennar mati hefði þróun mála síðan sýnt að utanríkisráðherra hefði rangmetið stöðuna, bæði varðandi framtíð Grænlands og bandarísk stjórnmál. Hún vísaði meðal annars til kosningasigurs Demókrata í Bandaríkjunum í vikunni.

Lilja dró í efa að Viðreisn gætti hagsmuna Íslands með fullnægjandi hætti í utanríkisráðuneytinu og sagði mikilvægt að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt þjóðarinnar.

„Hagsmunamatið var rangt fyrir þjóðaratkvæðagreiðsluna og eftir hana líka,“ sagði hún.

Framsókn undirbýr kosningarnar 2028

Í lok ræðunnar fjallaði Lilja um stöðu Framsóknarflokksins og undirbúning næstu kosninga. Hún sagði sveitarstjórnarkosningarnar hafa sýnt styrk flokksins um land allt.

Framsókn hefði boðið fram á 26 stöðum og tekið þátt í myndun meirihluta í 14 sveitarfélögum. Næsta verkefni væri að þétta raðirnar, endurvinna traust kjósenda og undirbúa kosningarnar árið 2028.

Lilja lýsti yfir bjartsýni á framtíð flokksins og sagði Framsókn eiga mikilvægu hlutverki að gegna í íslenskum stjórnmálum á næstu árum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila