Líneik Anna býður sig fram í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi

Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins

Líneik Anna Sævarsdóttir þingmaður Framsóknarflokksins hefur ákveðið að gefa kost á sér til endurkjörs en hún hefur tilkynnt að hún bjóði sig fram í fyrsta sæti Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi.

Líneik hefur verið Alþingismaður Norðausturkjördæmis 2013-2016 og 2017-2021, eftir að hafa starfað að sveitarstjórnarmálum frá 1998.

Á Alþingi hefur hún starfað í allsherjar- og menntamálanefnd, efnahags- og viðskiptanefnd, umhverfis- og samgöngunefnd, stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og  í Íslandsdeild þingmannaráðstefnunnar um norðurskautsmál. 

Fram kemur í tilkynningu frá Líneik Önnu að meðal baráttumála hennar séu jafnrétti og jafnræði íbúa landsins og þar með góðar samgöngur, bæði í raunheimum og netheimum. Samgöngur eru lykill að tækifærum og árangri í samfélagsþróun.

„Sjálfbær nýting náttúruauðlinda er grundvöllur íslensks efnahagslífs og því  þarf samspil manns og náttúru að vera viðvarandi viðfangsefni stjórnmálanna. Markvissar aðgerðir í umhverfismálum eru mikilvægar og þurfa að byggja á upplýstri umræðu“ segir í tilkynningunni.

Þá segir að Líneik sé tilbúin að fást á við öll þau verkefni sem samfélagið stendur frammi fyrir hverju sinni hvort sem það eru náttúruöflin, farsóttir eða eitthvað allt annað. Segir Líneik að eitt stærsta verkefnið framundan sé að fjölga störfum og styrkja atvinnulífið í kjölfar COVID 19.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila