
Hjördís Vilhjálmsdóttir ræddi við Jónas Atla Gunnarsson, yfirhagfræðing hjá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun, og Má Wolfgang Mixa, prófessor í viðskiptafræði við Háskóla Íslands, í þættinum Skipulagsmál, um stöðuna á húsnæðismarkaði, háa vexti og þráláta verðbólgu. Jónas sagði litla trú heimila og fyrirtækja á getu ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans til að ná verðbólgunni niður eiga stóran þátt í því að hún heldur áfram að reynast þrálát. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Fasteignamarkaðurinn kólnað í tæp 4 ár
Jónas sagði fasteignamarkaðinn hafa verið í kólnunarfasa í nær 4 ár. Tímabundin breyting varð þegar Grindvíkingar þurftu að finna sér nýtt húsnæði og eftirspurn jókst skyndilega en þegar þau áhrif eru tekin til hliðar hefur þróunin verið niður á við.
Markaðurinn er nú orðinn mjög kaldur og byggingaraðilar finna fyrir því frá 2 áttum. Þeir þurfa sjálfir að fjármagna framkvæmdir á háum vöxtum en eiga jafnframt erfiðara með að selja íbúðir vegna þess að kaupendur ráða síður við greiðslubyrðina.
Jónas sagði óbreytta stýrivexti benda til að þessi staða haldi áfram næstu mánuði. Vaxtalækkanir væru ekki yfirvofandi og því mætti áfram búast við erfiðleikum í byggingargeiranum.
Verðbólguvæntingar halda verðbólgunni uppi
Hjördís spurði hvers vegna verðbólgan héldist jafn há þrátt fyrir að fasteignamarkaðurinn hefði kólnað og byggingaraðilar væru farnir að draga úr umsvifum.
Jónas sagði verðbólguvæntingar skipta þar miklu máli. Þegar fólk og fyrirtæki búast áfram við mikilli verðbólgu hafi þær væntingar áhrif á ákvarðanir þeirra og geti þannig sjálfar stuðlað að því að verðbólgan haldist há.
Heimili og fyrirtæki hafa takmarkaða trú á íslenskri hagstjórn
Verðtrygging geti einnig skapað ákveðna tregðu þar sem verð og greiðslur fylgi fyrri verðbólgu og taki tíma að aðlagast þegar verðbólga fer að lækka. Jónas taldi þó grundvallarvandann vera að heimili og fyrirtæki hefðu takmarkaða trú á íslenskri hagstjórn eftir reynslu síðustu ára.
Sú vantrú næði bæði til ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans og gerði baráttuna við verðbólguna erfiðari. Erlendar verðhækkanir hefðu einnig áhrif en væntingar um að þær héldu áfram gætu orðið til þess að áhrif þeirra vörðu lengur en ella.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
