Logi: Valdþurrð utanríkisráðherra í ESB málinu

Pétur Gunnlaugsson ræddi við Loga Kjartansson, lögfræðing í síðdegisútvarpinu um lögmæti þess að utanríkisráðherra fari með mál um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu vegna Evrópusambandsins. Logi sagði að samkvæmt 15. grein stjórnarskrárinnar og tveimur forsetaúrskurðum um starfsskiptingu ráðherra og verkefnaskiptingu stjórnarmálefna hefði utanríkisráðherra ekki heimild til að leiða málið þar sem það varðaði stjórnskipan ríkisins og mögulegt framsal fullveldis Íslands. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Forsetaúrskurðirnir byggja á stjórnarskránni

Í viðtalinu sagði Logi að afstaða hans byggðist eingöngu á lögfræðilegum forsendum en ekki pólitískum sjónarmiðum. Hann sagðist hafa unnið umsögn til Alþingis og álitsgerð um málið að beiðni Þrastar Jónssonar sveitarstjórnarmanns í Múlaþingi og Sigfúsar Aðalsteinssonar. Hann vísaði til 15. greinar stjórnarskrárinnar þar sem kveðið er á um að forseti Íslands skipi ráðherra, ákveði tölu þeirra og skipti störfum með þeim. Logi sagði að forsetaúrskurðir um verkaskiptingu ráðherra væru gefnir út á þessum stjórnarskrárgrundvelli og hefðu því sérstaka þýðingu við mat á því hvaða ráðherra væri bær til að fara með tiltekin mál.

Logi bendir á að þessir 2 forsetaúrskurðir séu sérstaklega mikilvægir í þessu sambandi. Annars vegar forsetaúrskurður um starfsskiptingu ráðherra og hins vegar forsetaúrskurður um verkefnaskiptingu stjórnarmálefna í Stjórnarráði Íslands. Hann sagði úrskurðina efnislega samhljóða um að málefni sem varða stjórnskipan landsins og Stjórnarráð Íslands heyri undir forsætisráðherra.

Kristrún Frostadóttir nefnd sérstaklega í forsetaúrskurðinum

Logi benti á að í forsetaúrskurðinum væri Kristrún Frostadóttir nefnd sérstaklega með fullu nafni sem forsætisráðherra. Þar væri tekið fram að hún færi með þau stjórnarmálefni sem heyra undir forsætisráðuneytið samkvæmt úrskurðinum. Að mati Loga þýðir þetta að málið geti ekki verið á forræði utanríkisráðherra. Þar sem ESB-málið varði stjórnskipan ríkisins, fullveldi landsins og hugsanlegt framsal ríkisvalds falli það undir verksvið forsætisráðherra samkvæmt þeim úrskurðum sem forseti hefur gefið út á grundvelli 15. greinar stjórnarskrárinnar.

Hann sagði að hvorki lög um utanríkisþjónustu né aðrar réttarheimildir veittu utanríkisráðherra heimild til að leiða slíkt mál. Þá lægju engin gögn fyrir um lögmætt framsal valds frá forsætisráðherra til utanríkisráðherra.

Ráðherra má ekki fara inn á verksvið annars

Í viðtalinu sagði Logi að ráðherrar væru bundnir af þeim valdheimildum sem stjórnarskrá, lög og forsetaúrskurðir settu. Ráðherra mætti ekki fara inn á verksvið annars ráðherra og slíkt gæti talist valdþurrð í stjórnsýslurétti. Hann rifjaði upp að þegar ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur sótti um aðild Íslands að Evrópusambandinu árið 2009 hefði umsóknin verið undirrituð af Jóhönnu sjálfri sem forsætisráðherra. Að hans mati samræmdist það þeirri stjórnskipulegu verkaskiptingu sem enn gildir.

Logi sagði að hér væri um eitt stærsta stjórnskipulega mál lýðveldisins að ræða. Því bæri Alþingi og ríkisstjórninni að tryggja að málið væri rekið í samræmi við stjórnarskrá, lög og gildandi forsetaúrskurði.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila