
Eftir Hall Hallsson
Í kjölfar úrskurðar Landréttar um að sleppa skyldi ungu mönnunum tveimur úr gæsluvarðhaldi sem ákærðir hafa verið fyrir ásetning um hryðjuverk, hækkaði lögregla viðbúnaðarstig þann 13. desember síðastliðinn. Lögregla hefur gefið út fréttatilkynningu þessa efnis þar sem fram kemur að viðbúnaðarstig B merki að vísbendingar séu um að öryggisógnanir séu til staðar án þess að koma þurfi til sérstakra aðgerða eða neyðarráðstafana. Einnig kemur fram að samráð sé haft við önnur stjórnvöld og viðbragðsaðila eftir þörfum og farið yfir fyrirfram skipulögð vinnubrögð. Þá eykur lögreglan eftirlit með þeim stöðum sem ástæða þykir til að vakta sérstaklega.
Landsréttur felldi gæsluvarð úr gildi
Landsréttur felldi úr gildi gæsluvarðhald yfir ungu mönnunum þegar þeir höfðu setið þrjá mánuði í gæsluvarðhaldi. Ítarleg matsgerð dómskvadds geðlæknis lá fyrir um að þeir væru hættulausir. Þeir sæta ákæru fyrir brot á vopnalögum og undirbúning hryðjuverka. Ákæran um ásetning um hryðjuverk, árás á Alþingi og lögreglu er hin fyrsta í Íslandssögunni. Ef sekir fundnir um ákæruatriði bíður ungu mannanna ævilangt fangelsi.
Forsætisráðherra var gert viðvart við upphaf aðgerða, þjóðaröryggisráð upplýst í algjörum trúnaði. Ungu mennirnir voru leiddir í járnum inn í Sakadóm með andlit hulin. Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra sagði við handtöku mannanna 22. september: „Lögregla lagði á það mikla áherslu að ekkert færi út fyrr en þessum aðgerðum væri lokið. Eðlilega er ég, eins og aðrir, slegin yfir þessari stöðu … Þetta er sérlega óhugnalegt. Það sem liggur fyrir er hins vegar að þessar aðgerðir þessara aðila, þessi voðaverk, áttu að beinast gegn stofnunum ríkisins … Lögregla sýndi svo sannarlega í þessu máli hvers hún er megnug.“
Óvenju hörð viðbrögð réttargæslumanns
Réttargæslumaður annars mannsins tók óvenju hart til orða um málatilbúnað lögreglu og saksóknara og fullyrti að málið byggi á froðu og „…ruglspjalli drengjanna.“ Sveinn Andri Sveinsson hefur sakað ákæruvald og lögreglu um að leggja líf ungra manna í rúst til að réttlæta frumhlaup. Sveinn Andri sagði í samtali við Vísi: „Þeir eru ákærðir fyrir ótilgreind brot gegn ótilgreindum hópi á ótilgreindum tíma … Þetta er eins loðið og bakið á simpansa. Þetta er furðuleg framsetning … Það er ákært fyrir tilraun, en eina tilraun málsins er að rústa lífi tveggja ungra manna … Þetta er skelfilegt. Það er búið að setja líf tveggja manna á hliðina út af einhverju egói … Þetta eru örugglega fyrstu hryðjuverkamennirnir sem sanka að sér vopnum og selja þau áður en hryðjuverkin eru framin. Það er mjög sérstakur undirbúningur.“
