Lögregla rannsakar mannslát á Kársnesi – fleiri handteknir

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mannslát sem átti sér stað á Kársnesi í Kópavogi. Maðurinn sem varð fyrir alvarlegri líkamsárás í heimahúsi lést á Landspítalanum síðdegis. Lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás um klukkan 15 í dag, sunnudag og var maðurinn fluttur á Landspítalann í kjölfarið.

Einn handtekinn fyrst og fleiri handteknir síðar

Einn maður var handtekinn fljótlega eftir að málið kom upp. Lögregla réðst síðar í aðgerðir í austurhluta Reykjavíkur þar sem nokkrir til viðbótar voru handteknir vegna málsins.

Málið rannsakað sem manndráp

Upphaflega var málið rannsakað sem alvarleg líkamsárás en eftir að maðurinn lést er það rannsakað sem manndráp.

Rannsóknin í algjörum forgangi

Lögreglan segir rannsókn málsins vera í algjörum forgangi hjá embættinu. Ekki verða veittar frekari upplýsingar um tildrög málsins eða rannsóknina að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila