Lögregla rannsakar mannslát á Kársnesi

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar mannslát sem átti sér stað á Kársnesi í Kópavogi í dag. Að minnsta kosti 1 maður hefur verið handtekinn vegna málsins.

Málið fyrst rannsakað sem líkamsárás

Lögreglu barst tilkynning um alvarlega líkamsárás í heimahúsi í Kópavogi um klukkan 15 í dag. Karlmaður var fluttur á slysadeild í kjölfar árásarinnar. Upphaflega var málið rannsakað sem alvarleg líkamsárás og sagði lögregla þá rannsóknina vera á algjöru frumstigi. Síðar kom í ljós að málið væri rannsakað sem manndráp.

Samkvæmt upplýsingum lögreglu liggja ekki fyrir frekari upplýsingar um tildrög málsins eða tengsl þeirra sem komu að því að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila