Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Friðfinni Frey Kristinssyni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Friðfinni Frey Kristinssyni, 42 ára. Síðast er vitað um ferðir Friðfinns, síðdegis fimmtudagskvöldið 10. nóvember þegar hann fór frá Kugguvogi. Friðfinnur var klæddur í gráa peysu með BOSS merki á og gráar joggingbuxur Hann er 182 cm á hæð, grannvaxinn, brúnhærður og með alskegg.

Íbúar í hverfinu eru beðnir um að skoða nærumhverfi sitt s.s. geymslur, stigaganga og garðskúra. Þá eru þeir sem eru í forsvari fyrir auðu húsnæði í hverfinu beðnir um að skoða slíka staði. Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir Friðfinns eru beðnir að hafa samband við lögregluna í síma 112.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila