Lögreglan lýsir eftir 17 ára stúlku

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Ernu Athichu Jónsdóttur, 17 ára gamalli stúlku, og óskar eftir aðstoð almennings við að hafa uppi á henni.

Erna er grannvaxin, um 170 sentímetrar á hæð, með brún augu og sítt hár með ljósum strípum.

Lögreglan biður þá sem kunna að hafa orðið varir við Ernu eða geta veitt upplýsingar um ferðir hennar að hafa tafarlaust samband við Neyðarlínuna í síma 112.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila