Lögreglan lýsir eftir Toyota Yaris bifreið með sitt hvorri númeraplötunni

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir dökkgráum Toyota Yaris, árgerð 2014, með skráningarnúmerið NMA 87 að aftan en númerið SLD 43 að framan.

Þeir sem geta gefið upplýsingar um ferðir bílsins, eða vita hvar hann er niðurkominn, eru vinsamlegast beðin um að hafa tafarlaust samband við lögreglu í síma 112.

Meðfylgjandi eru myndir af samskonar bíl.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila