Lögreglan óskar eftir upplýsingum vegna minkamálsins í Mosfellsdal

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir upplýsingum frá almenningi vegna rannsóknar á því hvernig fjöldi minka slapp frá Dalsbúi í Mosfellsdal snemma í morgun.

Leita upplýsinga um mannaferðir

Talið er að óprúttinn aðili eða aðilar hafi staðið að verknaðinum. Lögreglan leitar því upplýsinga um mannaferðir í Mosfellsdal frá miðnætti og þar til málið var tilkynnt um klukkan sjö í morgun.

Ekki er ósennilegt að þeir sem stóðu að verknaðinum hafi komið akandi og lagt ökutæki sínu á svæðinu í aðdragandanum.

Myndefni gæti skipt sköpum

Lögreglan telur að myndefni úr ökutækjamyndavélum og öryggismyndavélum geti varpað ljósi á málið. Því er óskað eftir að þeir sem kunna að búa yfir slíku efni athugi upptökur sínar.

Beiðnin nær meðal annars til umferðar um Þingvallaveg, Hlaðgerðarkotsveg, Reykjahlíðarveg, Æsustaðaveg, Æsustaðaland, Hraðastaðaveg, Helgadalsveg og Dalsbúsveg.

Hægt að senda upplýsingar með tölvupósti eða síma

Þeir sem búa yfir upplýsingum eða myndefni eru beðnir um að senda það á netfangið 0617@lrh.is ásamt nafni og símanúmeri. Einnig er hægt að hafa samband við lögreglu í síma 444 1000.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila