Lögreglan rannsakar andlát manns

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar andlát manns sem fannst meðvitundarlaus og með litlum lífsmörkum í íbúð í Þingholtunum. Það var á sjöunda tímanum í morgun var lögreglan kölluð að húsinu í þingholtunum. En þaðan barst kvörtun um hávaða og háreysti frá íbúð í húsinu. Þegar lögregla kom á staðinn reyndust þrír menn vera í íbúðinni.

Einn þeirra var meðvitundarlaus og með litlum lífsmörkum. Sjúkrabíll var þegar í stað kallaður til. Lögregla hóf strax endurlífgun sem hélt áfram þegar sjúkraflutningamenn komu á vettvang. Stuttu seinna var maðurinn úrskurðaður látinn á bráðamóttöku Landspítalans. Tveir menn voru handteknir á staðnum og fluttir í fangageymslu. Rannsókn málsins er í fullum gangi.

Lögreglan vill ekki tjá sig meira um málið að svo stöddu.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila