
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu varar við umfangsmikilli svindlherferð sem nú beinist að íslenskum símanotendum með smáskilaboðum sem látin eru líta út fyrir að vera frá umferðarlögreglu. Í skilaboðunum er fólki bent á að smella á hlekk til að greiða meinta sekt. Samkvæmt lögreglu hafa aldrei borist jafn margar tilkynningar um netbrotatilraunir á jafn skömmum tíma og nú, sem bendir til þess að um mjög umfangsmikla atlögu sé að ræða.
Lögregla hvetur fólk til að opna ekki hlekki
Lögreglan hvetur almenning til að smella aldrei á hlekki sem berast með þessum hætti í skilaboðum. Í stað þess er fólki ráðlagt að fara beint inn á opinberar og viðurkenndar vefsíður þeirra aðila sem skilaboðin segjast vera frá. Bent er á að sektir frá lögreglu berast alltaf í gegnum Ísland.is en ekki með smáskilaboðum sem innihalda greiðsluhlekk.
Þolendur hvattir til að hafa strax samband við banka
Telji fólk sig hafa orðið fyrir svikum eða tapað fjármunum vegna skilaboðanna er því ráðlagt að hafa tafarlaust samband við sinn viðskiptabanka til að fá ráðgjöf og takmarka mögulegt tjón. Í framhaldinu er fólki bent á að tilkynna málið til lögreglu.
Lögreglan minnir jafnframt á netbrotagáttina á Ísland.is þar sem hægt er að tilkynna bæði netbrot og tilraunir til slíkra brota.
Sjá má dæmi um slíkt svika SMS hér að neðan:

