Rannsaka mannslát í Hafnarfirði

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar andlát konu á sextugsaldri, en konan fannst látin í heimahúsi í Hafnarfirði í gærkvöld.

Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að tveir menn sem voru á staðnum þegar lögreglu bar að hafi verið handteknir í þágu rannsóknar málsins, en annar mannanna er um þrítugt en hinn á sextugsaldri.

Þá segir í tilkynningunni að rannsókn málsins sé á frumstigi en hún beininst meðal annars að því hvort mennirnir hafi átt sinn þátt í andláti konunnar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila