Lögreglumenn njóta ekki nægilegrar réttarverndar gagnvart hótunum og ofbeldi

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Fjölni Sæmundsson, rannsóknarlögreglumann og formann Landssambands lögreglumanna, í síðdegisútvarpinu á Útvarpi Sögu í dag, um ofbeldi og hótanir gegn lögreglumönnum. Samkvæmt nýrri löggæsluáætlun hafa 58% lögreglumanna orðið fyrir ofbeldi eða hótunum í starfi. Fjölnir gagnrýndi réttarvernd lögreglumanna og sagði hótanir jafnvel beinast að fjölskyldum þeirra og börnum. Lögreglumenn þyrftu jafnvel fara huldu höfði í vissum tilfellun og væru ekki skráðir í þjóðskrá til að venda sig. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Árásir á lögreglumenn ekki nægilega oft ákærðar sem brot gegn valdstjórninni

Fjölnir sagði lögreglumenn hafa leitað til Landssambands lögreglumanna vegna þess sem þeir teldu skort á réttarvernd. Hann gagnrýndi að saksóknarar ákærðu ekki oftar samkvæmt 117. grein almennra hegningarlaga um brot gegn valdstjórninni.

Hann taldi árás á lögreglumann við skyldustörf ekki aðeins beinast gegn einstaklingnum heldur einnig þeirri stofnun sem hann starfaði fyrir.

Að hans sögn kæmi fyrir að sakborningar héldu því fram að þeir hefðu ekki vitað að viðkomandi væri lögreglumaður. Hann nefndi dæmi um ómerktan lögreglubíl sem ekið hefði verið á við eftirför þrátt fyrir að lögreglumaðurinn hefði gert grein fyrir sér.

Fjölnir taldi að slík mál ættu að fá strangari meðferð og ákvæði um brot gegn valdstjórninni væru ekki nýtt sem skyldi.

Hótanir ná inn á heimili lögreglumanna

Fjölnir sagði lögreglumenn verða fyrir hótunum þar sem brotamenn vísuðu til maka þeirra, barna og heimilisfanga. Slíkar hótanir kæmu helst fram við handtökur og beindust að því sem lögreglumenn væru viðkvæmastir fyrir.

Hann sagði að lögreglumönnum hefði verið veitt heimild til að takmarka aðgengi að heimilisupplýsingum sínum og væru ekki í þjóðskránni. Lögregluembætti hefðu meðal annars aðstoðað við uppsetningu eftirlitsmyndavéla á heimilum þeirra.

Fjölnir gagnrýndi að þeir sem ættu að gæta öryggis almennings þyrftu sjálfir að fela búsetu sína. Eftirlitsmyndavél gæti skráð árás en ekki komið í veg fyrir hana. Hann taldi nauðsynlegt að grípa fyrr inn í þegar hótanir kæmu fram.

Íkveikja í bíl lögreglukonu vekur spurningar

Fjölnir vísaði til dóms í máli þriggja manna sem kveiktu í bíl lögreglukonu. Hann sagði mennina hafa borið því við að þeir hefðu fengið greitt fyrir verknaðinn en ekki vitað hver ætti bílinn.

Hann gagnrýndi að málið hefði ekki verið meðhöndlað sem árás á lögreglumann og velti því upp hvort nægilega hefði verið rannsakað hver hefði staðið að baki íkveikjunni.

Fjölnir tók fram að hann hefði lesið dóminn en ekki rannsóknargögn málsins. Hann taldi engu að síður ástæðu til að skoða nánar hver hefði pantað verknaðinn. Arnþrúður sagði að dómurinn hefði kveðið upp 6 mánaða skilorðbundna dóma.

Vill að ofbeldi gegn lögreglu hafi afleiðingar

Fjölnir sagði viðhorf innan lögreglunnar hafa breyst. Áður fyrr hefðu lögreglumenn frekar sætt sig við meiðsl og ofbeldi sem hluta starfsins en yngri lögreglumenn væru ákveðnari í að tilkynna slíkt.

Hann taldi skilorðsbundna dóma og niðurfellingu mála geta dregið úr fælingarmætti refsinga. Ef árásir á lögreglumenn hefðu litlar afleiðingar væri hætta á að brotin endurtækju sig.

Fjölnir sagði upptöku rafvarnarvopna hafa dregið úr meiðslum lögreglumanna við handtökur þar sem átök væru minni. Vopnin leystu hins vegar ekki vandann sem fylgdi hótunum gegn lögreglumönnum og fjölskyldum þeirra.

Hann lagði áherslu á að tryggja þyrfti lögreglumönnum raunverulega vernd í starfi og bregðast við hótunum áður en þær leiddu til alvarlegra atvika.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila