Lyfjafræðingar bera sjálfir ábyrgð á bólusetningum í apótekum

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Ólaf Adolfsson, lyfjafræðing og þingmann Sjálfstæðisflokksins, í síðdegisútvarpinu um þá breytingu að lyfjafræðingar geti frá 1. október bólusett fólk í apótekum. Þjónustan verður greidd af Sjúkratryggingum Íslands og Ólafur segir lyfjafræðinginn sjálfan bera ábyrgð á framkvæmd bólusetningarinnar og skráningu hennar. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Apótekin fá stærra hlutverk í heilbrigðisþjónustunni

Ólafur sagði breytinguna ekki koma lyfjafræðingum á óvart. Apótek hefðu á undanförnum árum þróast í átt að víðtækari heilbrigðisþjónustu í stað þess að sinna aðeins afgreiðslu lyfseðilsskyldra lyfja og lausasölulyfja.

Apótekið væri oft fyrsti staðurinn þar sem fólk leitaði aðstoðar vegna heilsufarsvandamála. Þar væru því vannýtt tækifæri til að nýta menntun lyfjafræðinga betur og létta undir með öðrum hlutum heilbrigðiskerfisins.

Flensu- og ferðamannabólusetningar

Fyrsta skrefið verður bólusetningar. Ólafur sagði þar fyrst og fremst um að ræða flensubólusetningar og ferðamannabólusetningar.

Ferðamannabólusetningar hafa þegar verið framkvæmdar í ákveðnum apótekum en þá þurfti lyfseðil frá lækni. Breytingin felur í sér að lyfjafræðingurinn verður ekki lengur háður lækni um ávísun á bóluefnið sem hann notar við bólusetninguna.

Lyfjafræðingar þurfa að fara á sérstök námskeið og búnaður þarf að vera til staðar ef einstaklingur fær ofnæmisviðbrögð.

Lyfjafræðingurinn ber ábyrgðina

Arnþrúður spurði hver bæri ábyrgð ef eitthvað færi úrskeiðis við bólusetningu, hvort það væri lyfjafræðingurinn, apótekið eða heilbrigðiskerfið.

Ábyrgðin liggur hjá lyfjafræðingnum sem framkvæmir bólusetninguna. Ef um handvömm er að ræða ber hann ábyrgð og tryggingar þurfa að vera fyrir hendi vegna hugsanlegra atvika.

Þetta er því aðskilið frá ábyrgð læknis enda er það lyfjafræðingurinn sem kemur að ávísun og framkvæmd í þessu tilfelli.

Bólusetningin fer í sjúkraskrá

Bólusetning í apóteki verður ekki meðhöndluð eins og hefðbundin sala á lausasölulyfi. Upplýsingar um hana verða skráðar í miðlægt kerfi og eiga að vera aðgengilegar innan sjúkraskrár viðkomandi.

Arnþrúður vakti einnig athygli á mikilvægi þess að heildaryfirsýn yfir heilsufar sjúklings glatist ekki þegar fleiri heilbrigðisstéttir taka að sér verkefni sem áður voru fyrst og fremst hjá læknum. Læknir hafi heildaryfirlit yfir heilsufar sjúklings en ekki lyfsalar.

Ólafur sagði stafræna upplýsingamiðlun innan heilbrigðiskerfisins verða sífellt betri og að læknar hefðu aðgang að skráningum um bólusetningar og lyfjanotkun.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila