
Maðurinn sem lést í Stuðlagili síðastliðinn mánudag hét Piotr Sójka. Hann var 39 ára pólskur ríkisborgari og var á ferðalagi hér á landi þegar slysið varð.
Piotr var búsettur í Póllandi.
Rannsóknardeild lögreglunnar á Austurlandi rannsakar tildrög slyssins og segir rannsóknina miða vel.
Lögreglan vottar aðstandendum Piotr samúð sína.
