Maíspá Guðrúnar: Hildur Björnsdóttir mun mynda meirihluta með Miðflokknum í Reykjavík

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, heilara og miðil í síðdegisútvarpinu í dag þar sem Guðrún spáði í komandi atburði og meðal annars um meirihlutaviðræður eftir sveitarstjórnarkosningarnar í Reykjavík og Hafnarfirði. Guðrún sagði að Hildur Björnsdóttir myndi verða næsti borgarstjóri Reykjavíkur og Sjálfstæðisflokkurinn myndi mynda meirihluta með Miðflokknum og mögulega Framsóknarflokknum líka. Þá taldi hún einnig að Framsókn, Samfylking og Miðflokkur myndu ná saman um meirihluta í Hafnarfirði þar sem oddviti Framsóknar héldi áfram sem bæjarstjóri. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Framsóknarflokkur, Samfylking og Miðflokkur mynda meirihluta í Hafnarfirði

Í viðtalinu var farið yfir stöðuna í Hafnarfirði þar sem meirihlutaviðræður hafa verið í óvissu eftir kosningarnar. Guðrún sagði að hún teldi núverandi bæjarstjóra Framsóknarflokksins líklegan til að halda embætti sínu þrátt fyrir erfiðar viðræður undanfarinna daga. Að hennar mati stefndi í samstarf Framsóknarflokks, Samfylkingar og Miðflokks.

Arnþrúður rakti að viðræður Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks í Hafnarfirði hefðu virst líklegar fyrst eftir kosningar en þær hefðu síðan strandað. Guðrún sagði að Samfylkingin hefði þar komið inn í myndina og niðurstaðan yrði líklega nýr meirihluti án Sjálfstæðisflokksins.

Hún sagði stöðuna þó enn viðkvæma og talsverð óvissa ríkti um lokaniðurstöðuna. Guðrún taldi engu að síður að Framsókn myndi ná að halda stjórnartaumunum í bænum.

Viðreisn utan meirihluta í Reykjavík

Rætt var um stöðuna í Reykjavík eftir sterka kosningu Sjálfstæðisflokksins þar sem flokkurinn bætti við sig 3 borgarfulltrúum. Guðrún sagði að hún sæi Hildi Björnsdóttur leiða nýjan meirihluta og Miðflokkurinn yrði þar lykilaðili.

Guðrún útilokaði alfarið að Viðreisn yrði hluti af meirihlutanum. Að hennar mati væru sjónarmið Hildar Björnsdóttur og Bjargar Magnúsdóttur í Viðreisn of ólík, bæði í stjórnmálalegum áherslum og nálgun á helstu mál borgarinnar. Guðrún sagði að þar væru undir djúpstæð ágreiningsmál sem erfitt yrði að brúa.

Í umræðunni kom einnig fram að Framsóknarflokkurinn gæti komið inn í meirihlutann þrátt fyrir slæma kosningu flokksins. Arnþrúður benti á að þannig gæti skapast breiðari samsetning í borgarstjórn og fleiri sjónarmið fengið vægi.

Togstreita innan flokksins og umræða um fjármál

Guðrún sagði að jákvæð stemning ríkti víða í kringum Hildi Björnsdóttur eftir kosningarnar og Sjálfstæðisflokkurinn væri að styrkjast. Hún sagði þó einnig að ákveðin togstreita væri enn til staðar innan flokksins og ekki væru allir sammála um næstu skref.

Mál sem tengjast Degi B. Eggertssyni fram í dagsljósið

Þá ræddi hún einnig um málefni sem hún taldi eiga eftir að koma frekar upp á yfirborðið á næstu misserum í Reykjavíkurborg. Þar nefndi hún sérstaklega fjármál borgarinnar, ráðstöfun fjármuna og mál sem tengdust lóðum, byggingarrétti og mögulegu „lóðabraski“. Arnþrúður rifjaði upp gagnrýni sem komið hefur fram undanfarin ár á rekstur borgarinnar, útgjöld vegna Borgarlínu og ýmis fasteignamál. Guðrún taldi að farið yrði ítarlegar yfir eldri ákvarðanir borgarinnar sem tengdust Degi B. Eggertssyni og að einhver mál gætu komið upp sem þyrfti að rannsaka betur.

Einnig kom fram að Guðrún teldi að breytingar yrðu gerðar á félagslegu húsnæði borgarinnar og hvernig þeim íbúðum væri úthlutað. Hún sagði að yfirvöld myndu fara betur yfir hverjir hefðu raunverulega þörf fyrir slíkt húsnæði og hvort breytinga væri þörf á kerfinu.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila