Maíspá Guðrúnar: Stórt eldgos nálægt Krýsuvík

Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Guðrúnu Kristínu Ívarsdóttur, heilara og miðil í síðdegisútvarpinu þar sem hún spáði í komandi atburði og meðal annars um veðurfar sumarsins, jarðhræringar og eldgos. Guðrún sagði að hún sæi fyrir sér hlýtt og gott sumar víða um land, þó rigningarkaflar yrðu inn á milli. Hún sagðist sjá stórt eldgos yrði á Reykjanesi og virkni gæti færst nær Krýsuvíkursvæðinu og jafnvel í átt að Hafnarfirði. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.

Hlýtt sumar um mestallt land – Rigning um verslunamannahelgina í Vestmannaeyjum

Í viðtalinu sagði Guðrún að henni fyndist sumarið ætla að verða gott víðast hvar á landinu. Hún taldi að hlýtt yrði frá miðjum júní og sól yrði ríkjandi þrátt fyrir einstaka rigningartímabil. Hún nefndi þó sérstaklega að verslunarmannahelgin gæti orðið vot og þar sæi hún meiri úrkomu en ella. Arnþrúður rifjaði upp að Guðrún hefði einnig spáð rigningasömu veðri um verslunarmannahelgi á síðasta ári og það hafi orðið raunin í Vestmannaeyjum.

Gos líklegt í júní

Í þættinum var farið yfir jarðhræringar á Reykjanesi. Guðrún sagði að hún teldi að eldgos yrði aftur á svæðinu og virkni gæti hafist á ný í júní. Hún sagðist ekki sjá gos inni í Grindavík sjálfri heldur fremur á svæðum nær Svartsengi, Bláfjöllum eða Krýsuvík. Hún sagði að gosið gæti orðið öflugra en fyrri gos á svæðinu og fólk ætti að vera undirbúið þó hún sæi ekki fyrir sér mannskaða. Guðrún hvatti fólk til að fylgjast vel með aðstæðum og vera meðvitað um mögulegar náttúruhamfarir án þess þó að óttast.

Í umræðunni kom fram að hún tengdi svæðið milli Bláfjalla, Krýsuvíkur og Hveragerðis sérstaklega við þá virkni sem hún sagðist skynja.

Jarðhræringar víðar á landinu

Guðrún sagði einnig að hún sæi fyrir sér virkni annars staðar á landinu, þar á meðal á hálendinu og norðanlands. Hún átti erfitt með að staðsetja nákvæmlega hvaða svæði það væru en lýsti því að hún sæi hraun, auðnir og svæði inni á miðhálendinu. Guðrún sagðist helst tengja þetta við hálendissvæði fjarri byggð.

Þá lýsti hún einnig áhyggjum af svæðum á Suðurlandi og nefndi sérstaklega Vík í Mýrdal í tengslum við mögulega skjálftavirkni eða jökulhlaup. Hún tók þó fram að hún vildi ekki setja fram hræðsluspár heldur einungis lýsa því sem hún teldi sig skynja. Guðrún sagði að náttúruöflin væru enn virk og Íslendingar þyrftu áfram að búa sig undir breytingar á eldvirkum svæðum landsins á næstu árum.

Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila