Malbikað fyrir rúman milljarð á árinu

Malbikað verður fyrir alls um 842 milljónir króna í Reykjavíkurborg í sumar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við fræsun og yfirlagnir í maí og áætlað að þeim ljúki í september. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Í tilkynningunni kemur fram að til viðbótar er kostnaður við hefðbundnar malbiksviðgerðir áætlaður um 230 milljónir króna en malbiksviðgerðir fara fram allt árið. Heildarupphæð malbikunarframkvæmda í Reykjavík á árinu 2024 er því áætluð 1.072 milljónir króna.

Borgarráð heimilaði umhverfis- og skipulagssviði að bjóða út malbikunarframkvæmdir ársins á fundi sínum fimmtudaginn 11. apríl. 

Götur og/eða götukaflar í forgangi 2024 eru:

Mýrargata (Ánanaust – Hlésgata), Geirsgata (Steinbryggja – Kalkofnsvegur), Vonarstræti (Lækjargata-Templarasund), Baldursgata (gatnamótasvæði við Þórsgötu), Faxagata (Sæbraut – Harpa), Fornhagi(Hjarðarhagi – Ægisíða), Frostaskjól (Kaplaskjólsvegur – Frostaskjól nr. 7), Fríkirkjuvegur (Skálholtsstígur – Skothúsvegur), Furumelur (Hagamelur – Neshagi), Frakkastígur (Laugavegur – Hverfisgata).

Kapellutorg austur (Bústaðavegur – Kapellutorg), Kárastígur (Skólavörðustígur – Frakkastígur), Klapparstígur (Skúlagata – Hverfisgata), Langahlíð vestur (Flókagata – Skaftahlíð), Laugavegur (Vitastígur – Frakkastígur), Samtún (Höfðatún – Nóatún), Skólabrú (Lækjargata – Kirkjutorg), Stangarholt (Skipholt – Nóatún), Tómasarhagi (Fálkagata – Dunhagi), Traðarholt (Skipholt – Brautarholt), Túngata (Ægisgata – Hofsvallagata), Vesturvallagata (Holtsgata – Ásvallagata), Vesturgata (Seljavegur – Bræðraborgarstígur), Víðihlíð (Birkihlíð – Suðurhlíð), Víðimelur (Víðimelur nr. 45 -Furumelur).

Álmgerði (Stóragerði – Grensásvegur), Ármúli (Háaleitisbraut – Síðumúli), Breiðagerði (Grensásvegur – Sogavegur), Dalbraut, (Sæbraut – Sundlaugavegur), Goðheimar (Sólheimar – Glaðheimar), Háaleitisbraut norður (Ármúli – Kringlumýrarbraut), Háaleitisbraut (nr. 36-56), Kleppsmýrarvegur (Skútuvogur – Bátavogur), Knarrarvogur (Súðarvogur inn í enda), Rauðagerði (Borgargerði – Tunguvegur), Rauðalækur (Bugðulækur – Dalbraut), Réttarholtsvegur (Bústaðavegur – Langagerði), Skeifan (Grensásvegur – hringtorg), Súðarvogur st. 418 – 514, Vesturbrún nr. 17-37 (Vesturbrún – inn í enda).

Austurberg (Suðurhólar – Hraunberg), Álfabakki (Tungubakki – Arnarbakki), Bæjarháls (Rofabær – Höfðabakki og hringtorg v/Bæjarbraut) Fálkabakki (Arnarbakki – Höfðabakki), Ferjuvað (Norðlingabraut – inn í enda), Helluvað (Norðlingabraut – inn í enda), Írabakki (Arnarbakki – inn að lóðarmörkum), Hjaltabakki (Arnarbakki – inn að lóðarmörkum), Hraunbær, tengigata að Bæjarhálsi/Tunguhálsi og nr. 69-105), Norðlingabraut (Árvað – Helluvað), Norðlingabraut nr. 6-8 (Norðlingabraut – að lóðarmörkum), (Norðlingabraut – að lóðarmörkum), Rofabær, (Bæjarbraut -Skólabær), Seiðakvísl nr. 23-41 (Seiðakvísl – inn í enda), Stekkjarbakki til Breiðholtsbrautar (Álfabakki – Þarabakki), Straumur (Nethylur – Bröndukvísl), Stuðlasel nr. 21-35 (Stuðlasel – inn í enda), Stuðlasel nr. 9-19, (Stuðlasel – inn í enda), Stuðlasel nr. 10-18 (Stuðlasel – inn í enda), Stuðlasel nr. 2-8 (Stuðlasel -inn í enda), Suðurás norður (Selásbraut – Suðurás nr. 14), Suðurás suður. (Vesturás – Suðurás nr. 16), Vatnsveituvegur (Brekknaás – félagsheimili), Viðarás nr. 59-79.

Gullinbrú gatnamót við Fjallkonuveg / Lokinhamra, Gullinbrú vestur(Fjallkonuvegur – suður), Borgavegur(Sóleyjarrimi -Spöng), Borgavegur Smárarimatorg, Breiðavík (Hamravík – Vík), Fossaleynir nr. 2-6 (Fossaleynir – að lóðarmörkum), Garðhús, (Gagnvegi – inn í enda), Gefjunarbrunnur (Gefjunartorg -Freyjubrunnur), Guðríðarstígur (Vínlandsleið – Guðríðarstígur nr. 6-8), Gufunesvegur st. 298-854, Haukdælabraut (Fellsvegur – Döllugata), Haukdælabraut (Döllugata – Gissurargata), Haukdælabraut (Gissurargata – Haukdælabraut nr. 1), Haukdælabraut (Haukdælabraut nr. 108 -Gissurargata), Haukdælabraut (Haukdælabraut nr. 108 – Gissurargata), Hrísrimi nr.6-10 (Hrísrimi- að lóðarmörkum), Korpúlfsstaðavegur (Garðastaðir – Brúnastaðir), Malarhöfði nr. 6-8 (Malarhöfði – að lóðarmörkum), Maríubaugur nr. 125-143 (Maríubaugur – að lóðarmörkum), Marteinslaug nr. 8-16 (Marteinslaug – inn í enda), Mosavegur (Skólavegur – Spöng), Víkurvegur, vestur akreinin yfir brú, Völundarhús (Suðurhús – Meðalvegur), Þjóðhildarstígur (Þúsöld – inn í enda), Þorláksgeisli (Þorláksgeisli nr. 6 – inn í enda), Vallargrund (Tengigata – Hofsgrund), Kollagrund.

Sá fyrirvari er settur að listi yfir götur getur breyst við frekari ástandsskoðun á vormánuðum. Niðurbrot gatna er mjög háð yrti aðstæðum eins og umferðarþunga og veðurfari.

Staðan í gatnakerfinu

  • Á síðastliðnum fjórum árum hefur Reykjavíkurborg verið að endurnýja árlega um 20-27 kílómetra af slitlagi borgarinnar, sem er á milli 5-6% af heildarumfangi gatnakerfisins. Þessu til viðbótar hefur einnig verið unnið að smærri viðgerðum sem auka endingu gatna um nokkur ár.
  • Ástand gatnakerfis Reykjavíkurborgar hefur haldist nokkuð stöðugt á þessum fjórum árum og hefur hlutfall gatna í góðu ástandi (meira en fimm ár eftir af líftíma) haldist sambærilegt, eða um 58-66% af gatnakerfinu. Hlutfall gatna í slæmu ástandi, þar sem líftími þess er liðinn, hefur farið hægt batnandi síðastliðin ár, úr 15% í 9% nú í janúar.
  • Áætluð þörf til endurnýjunar slitlaga hefur einnig haldist sambærileg nú í nokkur ár, eða á milli 25-30 kílómetra á ári, sem er um 5-7% af heildar gatnakerfi Reykjavíkurborgar.

Í meðfylgjandi minnisblaði Eflu kemur fram að það mætti því segja að ástand gatnakerfis Reykjavíkurborgar sé í ásættanlegu ástandi og er því ráðlagt að viðhalda gatnakerfinu með endurnýjun slitlaga að meðaltali um 6% af götum borgarinnar á ári, eða um 24-28 kílómetra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila