
Arnþrúður Karlsdóttir ræddi við Jón Gnarr, þingmann utan flokka, listamann og fyrrverandi borgarstjóra, í síðdegisútvarpinu, um málefni barna og ungmenna í erfiðri stöðu og þann stuðning sem hann fékk við málaflokkinn innan Viðreisnar. Jón sagði forgangsröðun flokksins hafa orðið aðra en hann hafði gert ráð fyrir og málefni barna í vanda hefðu mætt afgangi. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Forgangsröðunin önnur en rætt hafði verið um
Jón sagði málefni barna í erfiðri stöðu hafa verið einn helsta málaflokkinn sem hann ætlaði að vinna að þegar hann fór á þing. Þegar hann ræddi stöðu sína við formann Viðreisnar sagði hann sig ekki hafa fengið þann stuðning frá flokknum sem hann taldi sig þurfa til að vinna málunum framgang.
Honum fannst forgangsröðunin hafa þróast með öðrum hætti en rætt hafði verið um þegar hann gekk til liðs við flokkinn. Málefni barna í erfiðri stöðu hefðu í reynd mætt afgangi.
Arnþrúður rifjaði upp að fyrir kosningarnar 2024 hefði formaður Viðreisnar lagt áherslu á að taka þyrfti verulega á geðheilbrigðismálum barna og ungmenna. Hún spurði hvers vegna sá málaflokkur hefði ekki fengið meiri framgang.
Ýmislegt hefur þó náðst
Jón sagði þó að ekki hefði allt staðið í stað og nokkur árangur hefði náðst. Hann nefndi sérstaklega þörfina fyrir langtímameðferð fyrir stráka. Fyrra langtímaúrræði hafði verið lokað vegna myglu án þess að annað tæki strax við en nú væri komið úrræði í Gunnarsholti með að hans minni 6 eða 7 rýmum.
Hann nefndi einnig úrræði í Eyjafirði og drög að nýjum barnaverndarlögum þar sem margt væri til bóta þótt áfram væri ýmislegt sem þyrfti að laga.
Jón sagði sig engu að síður hafa viljað finna fyrir meiri stuðningi frá eigin flokki. Þegar fólk styddi aðra gengi það einnig út frá því að fá stuðning á móti og þegar það gerðist ekki breyttist matið á samstarfinu.
Þverpólitísk vinna rann út í sandinn
Jón átti, ásamt Ásthildi Lóu, þáverandi barnamálaráðherra, frumkvæði að þverpólitískum starfshópi sem átti að vinna að úrbótum í málaflokknum. Hann sagði samstarf við starfsfólk ráðuneytisins hafa verið gott en vinnuna hafa gengið erfiðlega. Eftir átökin um veiðigjaldið hefði lítil samvinnustemning verið á Alþingi, erfitt hefði verið að finna tíma fyrir fundi og stundum hefðu svo fáir mætt að ekki var fundarfært.
Ráðherraskipti og skipulagsbreytingar hefðu einnig haft áhrif á getu ráðuneytisins til að sinna vinnunni.
Starfstími hópsins rann að lokum út og Jón sagði verkefnið hafa endað sem nokkurs konar erindisleysu þótt markmiðið hefði verið að ná þverpólitískri samstöðu um úrbætur.
Málaflokkurinn þáttur í ákvörðuninni
Óánægja Jóns með stuðninginn við málefni barna var hluti af þeirri stöðu sem leiddi til þess að hann endurmat veru sína í þingflokki Viðreisnar.
Hann sagði að á þeim tímapunkti hafi hann séð fjóra möguleika: að hætta þingmennsku, ganga í annan flokk, verða þingmaður utan þingflokks eða þegja og sitja út kjörtímabilið.
Síðasti kosturinn kom að hans sögn ekki til greina og niðurstaðan varð að yfirgefa þingflokkinn en halda áfram störfum á Alþingi.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
