Matvælastefna til 2040 lögð fram á Alþingi

Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefur lagt fram þingsályktunartillögu um matvælastefnu fyrir Ísland. Stefnan er mörkuð til ársins 2040 og er ætlað að vera leiðarstef í ákvarðanatöku til að auka megi verðmætasköpun í innlendri matvælaframleiðslu, tryggja fæðu- og matvælaöryggi og auka velferð fólks í sátt við umhverfi og náttúru.

Í tilkynningu segir að í stefnunni sé lögð áhersla á sjálfbærni matvælaframleiðslu, samfélag, fæðuöryggi, matvælaöryggi, þarfir neytenda, rannsóknir, nýsköpun og menntun og verður henni fylgt eftir með aðgerðaáætlun til fimm ára.

Við gerð matvælastefnunnar var leitað samráðs við hagsmunaaðila, atvinnulífið og almenning. Að auki var efnt til Matvælaþings í nóvember þar sem ólíkir aðilar komu að umræðu um drög stefnunnar í pallborðum og opið var fyrir spurningar og athugasemdir frá almenningi.

Þingsályktunartillagan er einnig unnin með hliðsjón af áherslum matvælaráðherra og nýs matvælaráðuneytis sem tók til starfa 1. febrúar 2022. Heimsfaraldur kórónuveiru og innrás Rússlands í Úkraínu hafa breytt ýmsum forsendum sem áður voru taldar sjálfgefnar. Í tillögunni er því m.a. aukin áhersla lögð á fæðuöryggi, loftslagsmál og hringrásarhagkerfi.  

„Íslensk matvælaframleiðsla er mikilvægur hluti allra lykilhagstærða svo sem landsframleiðslu, útflutningsverðmæta og fjölda starfa“ sagði matvælaráðaherra. „Fá samfélög sem við berum okkur saman við eru jafn efnahagslega háð matvælaframleiðslu. Ísland er ríkt af auðlindum sem gerir landið að samkeppnishæfum matvælaframleiðanda innanlands sem og á“

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila