
Pétur Gunnlaugsson ræddi við Björn Inga Stefánsson eiganda Hótel Kríuness og Einar Gaut Steingrímsson lögmann í síðdegisútvarpinu um stöðu kristni á Íslandi og í heiminum. Þeir sögðu að þótt áhrif kristninnar hefðu á margan hátt dregist saman í íslensku samfélagi teldu þeir jafnframt að áhugi á trúmálum og umræðu um Jesú Krist væri að aukast, sérstaklega meðal ungs fólks. Hlusta má á þáttinn í spilaranum hér að neðan.
Kristinni trú vex fiskur um hrygg víða um heim
Björn Ingi sagði að kristin trú væri áfram eitt stærsta trúarbragð heims og víða væri að eiga sér stað öflug vakning. Hann nefndi sérstaklega Asíu, Afríku og Suður-Ameríku þar sem fjöldi fólks tæki kristna trú, auk þess sem merki sæjust um aukinn áhuga á kristni í Evrópu. Jafnframt benti hann á að kristnir menn sættu ofsóknum í mörgum löndum og víða væri þrýstingur á kristna hópa og kirkjur. Að hans mati færi saman að kristni væri að vaxa á sumum svæðum heims en mætti andstöðu á öðrum.
Kristnifræðsla hefur dregist saman í grunnskólum landsins
Einar sagði að kristin gildi hefðu að einhverju leyti vikið fyrir öðrum hugmyndum og viðhorfum í íslensku samfélagi. Hann nefndi sem dæmi að biblíufræðsla hefði dregist saman í skólum og sú hefð að grunnskólanemendur fengju Nýja Textamentið að gjöf væri ekki lengur við lýði.
Hann taldi það athyglisvert í ljósi þess að kristni hefði um aldir verið einn af hornsteinum íslensks samfélags og menningar. Einar vísaði einnig til þess að stjórnarskráin kveði á um sérstaka stöðu evangelísk-lútherskrar trúar á Íslandi og taldi eðlilegt að kristin menningararfleifð nyti áfram sýnilegs sess í samfélaginu.
Fólk opnara fyrir umræðu um trú
Einar sagðist jafnframt hafa orðið var við að auðveldara væri nú að ræða trúmál en áður. Að hans mati væri minni feimni gagnvart umræðu um kristna trú og fólk sýndi meiri vilja til að ræða lífsskoðanir, trú og tilgang lífsins.
Björn Ingi tók undir það mat og sagði að hann hefði orðið var við aukinn áhuga fólks á persónulegri trú og boðskap Jesú Krists. Sérstaklega sæist það meðal yngra fólks sem leitaði svara við spurningum um tilgang, sjálfsmynd og framtíð.
Björn Ingi og Einar sögðu að þrátt fyrir breytta stöðu kirkjunnar og kristinnar fræðslu í samfélaginu væri trúarleg leit enn sterk meðal margra. Þeir töldu að aukinn áhugi á kristni og opnari umræða um trúmál gætu bent til þess að fleiri væru að leita andlegra svara á tímum hraðra samfélagsbreytinga.
Hlusta má á ítarlegri umfjöllun í spilaranum hér að neðan.
