Lilja fundaði með menntamálaráðherra Manitoba

Kelvin Goertzen mennta- og innflytjendamálaráðherra Manitoba og Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra fundaði með Kelvin Goertzen mennta- og innflytjendamálaráðherra Manitobafylkis í Kanada.

Fundurinn var hluti af dagskrá ráðherra á Íslendingadeginum í Gimli og þar ræddu ráðherrarnir um mikilvægi tungumálakennslu fyrir innflytjendur og börn með annað móðurmál.

Menntamálastofnun, fyrir hönd mennta- og menningarmálaráðuneytis, á í samskiptum við menntamálayfirvöld í Manitoba vegna tungumálakennslu innflytjenda.

,,Ein af stærstu áskorunum menntakerfisins er staða barna með annað móðurmál en íslensku. Á framhaldsskólastiginu sjáum við hærri brottfallstölur hjá þeim hópi en hjá þeim sem hafa íslensku sem móðurmál. Innan mennta- og menningarmálaráðuneytisins er unnið að umbótum í málefnum þessa hóps og það var fróðlegt að bera saman bækur við starfsbróður minn í Manitoba hvað þetta varðar,‘‘ sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila