Metmagn fíkniefna haldlagt í tveimur umfangsmiklum málum

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar nú tvö umfangsmikil fíkniefnamál þar sem lagt var hald á samtals 177 kíló af fíkniefnum. Tíu einstaklingar sitja í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknanna, þrír Íslendingar og sjö erlendir ríkisborgarar, en málin eru óskyld.

Í öðru málinu lagði lögreglan hald á 108 kíló af kókaíni sem kom til landsins með flutningaskipi frá Suður-Ameríku. Um er að ræða mesta magn kókaíns sem haldlagt hefur verið í einni sendingu hér á landi.

Í hinu málinu fannst 56 kíló af amfetamíni í húsbíl sem kom til landsins með Norrænu. Aldrei áður hefur jafn mikið magn af amfetamíni verið haldlagt í einni sendingu á Íslandi.

Kókaín falið í sjókistu undir flutningaskipi

Samkvæmt lögreglu var kókaínið falið í sjókistu undir flutningaskipi sem kom til Straumsvíkur frá Suður-Ameríku. Í kjölfarið voru gerðar umfangsmiklar handtökur á höfuðborgarsvæðinu og víðar um landið í samvinnu við sérsveit ríkislögreglustjóra.

Níumenningar sitja nú í gæsluvarðhaldi vegna málsins, þar af þrír Íslendingar og sex erlendir ríkisborgarar. Flestir hinna grunuðu eru á fimmtugsaldri, sá yngsti um þrítugt og sá elsti á sextugsaldri. Handtökurnar fóru fram í þessari viku og þeirri síðustu.

Bleikt kókaín og fleiri efni í húsbíl

Í hinu málinu fylgdi lögreglan eftir húsbíl sem kom til landsins með Norrænu. Ökumaðurinn, erlendur ríkisborgari á sextugsaldri, var handtekinn á Norðurlandi fyrr í mánuðinum.

Auk 56 kílóa af amfetamíni fundust í húsbílnum 8 kíló af kókaíni, 3 kíló af ketamíni, 1 kíló af kristalmetamfetamíni og 1 kíló af svokölluðu bleiku kókaíni, sem er blanda af ketamíni og MDMA.

Unnið með innlendum og erlendum lögregluyfirvöldum

Lögreglan segir rannsókn beggja málanna ganga vel. Unnið hefur verið að þeim í samstarfi við fleiri lögregluembætti og Tollgæsluna.

Jafnframt hefur Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu notið aðstoðar Europol, en tveir fulltrúar stofnunarinnar komu til Íslands vegna rannsóknanna. Þá hefur tengslafulltrúi Íslands hjá Europol aðstoðað við samskipti við lögregluyfirvöld í Evrópu og utan hennar.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila