Miðflokkurinn í Hafnarfirði ætlar ekki að gefa afslátt af stefnu sinni

Miðflokkurinn í Hafnarfirði segir flokkinn ekki munu gefa afslátt af kjarnastefnu sinni í mögulegum samstarfsviðræðum eftir sveitarstjórnarkosningarnar í Hafnarfirði. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá flokknum í kjölfar kosninganna þar sem Miðflokkurinn rúmlega fjórfaldaði fylgi sitt og fór úr 2,8% í 11,4%. Flokkurinn segir engan annan flokk hafa aukið fylgi sitt meira hlutfallslega.

Ganga óbundin til samstarfs

Í yfirlýsingunni segir að Miðflokkurinn gangi óbundinn til samstarfsviðræðna þrátt fyrir að flokkurinn telji kosningaúrslitin sýna skýran vilja Hafnfirðinga til breytinga í bæjarmálum.

Þá segir flokkurinn að það sé ekki hlutverk stjórnmálaflokka að útiloka aðra frá samstarfi heldur kjósenda að taka þá ákvörðun í kosningum.

„Gefum ekki afslátt af kjarnastefnu okkar“

Miðflokkurinn leggur áherslu á að flokkurinn muni standa fastur á stefnumálum sínum og ekki fórna þeim fyrir völd eða stöður.

Í yfirlýsingunni segir að reynslan hafi sýnt að flokkurinn geti haft áhrif bæði í meiri- og minnihluta.

Þá þakkar Miðflokkurinn kjósendum í Hafnarfirði fyrir stuðninginn og segir bæjarbúa munu finna fyrir áhrifum flokksins á næstu fjórum árum.

Deila þessari frétt á samfélagsmiðla

Deila